[Vid-stund] Minnum á málstofu kl. 11: Leiðandi hagvísir fyrir Ísland
Elísa Jóhannsdóttir
ej at hi.is
Fri Jan 31 10:15:33 GMT 2014
Yngvi Harðarson flytur erindi á málstofu Hagfræðideildar undir
yfirskriftinni Leiðandi hagvísir fyrir Ísland.? ?
Samsettir leiðandi hagvísar eru vísitölur sem hreyfast í aðdraganda
breytinga á efnahagsástandi. Slíkar vísitölur eru gagnlegar við gerð
skammtímaspár um efnahagsframvindu. Meginmarkmiðið með gerð leiðandi
hagvísis er að hjálpa til við að sjá fyrir viðsnúning í efnahagsumsvifum
en vandasamt hefur þótt að spá fyrir um slíkt með hefðbundum
þjóðhagslíkönum.? ?
Hugmyndin að baki leiðandi hagvísi er sú að framleiðsla hefur aðdraganda.
Hagvísirinn er reiknaður á grundvelli þátta sem mælast í upphafi
framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um eftirspurn eftir vörum
og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga
og stofna til fjárfestinga.? ?
Vísitölur leiðandi hagvísa hafa verið reiknaðar fyrir helstu iðnríki um
áratugaskeið. Upphafið má rekja til rannsókna Wesley Mitchell og síðar
Arthur Burns á vegum NBER í BNA. Í dag eru leiðandi hagvísar reiknaðir
fyrir helstu iðnríki af ýmsum aðilum, opinberum aðilum, einkafyrirtækjum,
samtökum og alþjóðastofnunum s.s. OECD. ? ?
Aðferðafræði OECD við útreikning leiðandi hagvísa er vönduð og vel
skjöluð. Leiðandi hagvísir Analytica er byggður á þeirri aðferðafræði og
er ætlað að gefa vísbendingu um efnahagsumsvif að u.þ.b. sex mánuðum
liðnum en megintilgangurinn er að vara tímanlega við viðsnúningi í
efnahagsumsvifum.
Yngvi Harðarson er hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica, fyrirtækis
sem veitir áhættu- og fjárfestingaráðgjöf.
Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140131/4c043ffc/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 64960 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140131/4c043ffc/attachment-0002.jpe
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140131/4c043ffc/attachment-0003.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list