[Vid-stund] Minnum á morgunverðarfund í fyrramálið
Elísa Jóhannsdóttir
ej at hi.is
Thu Jan 30 16:03:31 GMT 2014
Föstudaginn 31. janúar kl. 14:00 ver Friðrik Larsen doktorsritgerð sína:
Positive Power: The Untapped Potential of Branding the Electricity Sector.
Þetta er önnur doktorsvörnin í markaðsfræði við Viðskiptafræðideild og í
tilefni af því býður Viðskiptafræðideild til morgunverðarfundar með
andmælendum Friðriks.
Um fyrirlesara:
Anne Rindell er dósent í markaðsfræði við Hanken School of Economics í
Helsinki. Eitt af sérsviðum hennar snýr að arfleifð fyrirtækja og áhrif
arfleifðar á ímynd vörumerkis í samtímanum, verk hennar hafa birst í
fjölda virtra tímarita. Nánari upplýsingar um hana eru á þessum hlekk.
Nick Lee er prófessor í markaðsfræði við Aston Business School. Meðal
rannsóknarsviða hans eru sölustjórnun, siðfræði, félagsleg sálfræði og
rannsóknaraðferðir. Fjallað hefur verið um verk hans í The Times, the
Financial Times og BBC Breakfast. Verk hans hafa birst í fjölda virtra
tímarita og er hann í ritstjórn European Journal of Marketing auk annarra
tímarita. Nánari upplýsingar um hann má finna á þessum hlekk.
Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140130/54687ea8/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 206822 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140130/54687ea8/attachment-0002.jpe
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140130/54687ea8/attachment-0003.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list