[Vid-stund] Málstofa þriðjudaginn 4. febrúar
Elísa Jóhannsdóttir
ej at hi.is
Fri Jan 31 13:45:57 GMT 2014
EES-samningurinn og íslenskur skattaréttur
Með samningi sem undirritaður var í Opertó í Portúgal 2. maí 1992, varð
Ísland aðili að evrópska efnahagssvæðinu frá og með 1. jan. 1994.
Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið opnaði dyrnar að innri markaði
Evrópusambandsins fyrir Ísland. Til að greiða fyrir viðskiptum sín á milli
ákváðu aðildarríkin að stuðla að samræmingu á löggjöf landanna á sviði
verslunar með það að markmiði að koma á fót einsleitum innri markaði þar
sem allir væru jafnir og frjálsir að för.
Rétturinn til að ákveða gjöld og skatta er undanskilinn
einsleitnikröfunni. Eigi að síður var öllum ljóst að álögurnar mættu ekki
mismuna erlendum ríkisborgurum sem kæmu hingað til lands eða hindra að
innlendir aðilar gætu nýtt sér fjórfrelsið með beinum eða óbeinum hætti
við flutning af landi brott. Í fyrirlestrinum verður gerð grein fyrir þeim
áhrifum sem fjórfrelsið hefur haft á innlendar skattareglur, einkum fyrir
tilstuðlan Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins svo og hvað enn þá sé
eftir að gera til svo að einsleitni kröfunni sé fullnægt.
Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140131/10fc282b/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 71498 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140131/10fc282b/attachment-0002.jpe
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140131/10fc282b/attachment-0003.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list