[HFR-keppendur] Æfingar, hugleiðingar varðandi æfingar.
Albert Jakobsson
aj at hi.is
Mon Mar 19 21:15:18 GMT 2007
Hæ.
Hér eru nokkur atriði til að haf í huga.
Hvað þarf að hafa í huga á hverri æfingu.
1. Hita upp 5-15 mín á léttu tempói og taka 2-3 létta spretti. Koma
blóðflæðinu á stað út í vöðva og starta ensímum og hvötum.
2. Gefa sér tíma til að hjóla létt á milli og á eftir átök.
3. Hafa með sér vatn og drykk 5-7% sykur til að halda við vökva tapi,
sykur þörf og steinefna inntöku.
4. Mjög mikilvægt eftir hverja æfingu er að hjóla 5-10 mín á léttu
tempói með 90-100 cadens til að hreinsa eins mikið af mjólkursýru úr
vöðvunum og mögulegt er. Þetta flýtir fyrir bata (Recovery)
5. þegar komið er heim fá sér kolvetni og prótein (mjög gott að fá sér
Shake frá einhverjum viðurkendum aðila t.d. Myoplex Delux 50 g af próteini.)
6. 15 mínútum síðar teygja vel á öllum vöðvum.
Interval æfingar: Við þurfum að taka okkur á með interval æfingar 1-3 mín
sprettir með 30-60 sek hvíld. Við þurfum að gera okkur klára fyrir
hraðabreytingar og vara fljótir að Recovera eftir það. Menn geta skipst á
að vera með forskrift á æfingum. Árni getur komið með æfingar sem voru
notaðar hjá FH þegar hann var að hlaupa.
Core vöðvar eða kjarnavöðvar
Taka æfingar fyrir core vöðva á öllum dögum. Það er hægt að gera þetta á
morgnana í pásum yfir daginn eða eftir æfingu.
Með kveðju
Albert Jakobsson
__ o
_-\<,_
....(_)/ (_).....
____________________________________________
E-mail aj at hi.is
GSM: 8996026 heima: 5525544 Heima: 5257454
____________________________________________
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20070319/dd6e8b2e/attachment.html
More information about the Hfr-keppendur
mailing list