[ÖRFÍ]Málþing um faraldur streptokokkasýkinga í íslenskum hrossum
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Tue Apr 14 10:07:11 GMT 2015
*Málþing um faraldur streptokokkasýkinga í íslenskum hrossum*
Faraldur smitandi hósta gekk yfir hrossastofninn árið 2010. Þrátt fyrir
að um tiltölulega vægan sjúkdóm væri að ræða hafði hann lamandi áhrif á
hestamennskuna í landinu og alla atvinnustarfsemi henni tengdri.
Matvælastofnun, Tilraunastöðin á Keldum og Dýralæknafélag Íslands boða
til málþings um faraldur streptokokkasýkinga í íslenskum
hrossum*föstudaginn 17. apríl kl. 10:30 – 17:00* í sal Íslenskrar
erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík. Dagskrá málþings er að
finna á íslensku og ensku í viðhengjum.
Langan tíma tók að greina orsök sjúkdómsins, m.a. vegna þess að þekkingu
skorti á stofnabreytileika hinnar annars vel þekktu bakteríu
/Streptococcus zooepidemicus/, sem fyrst og fremst var talin fylgja í
kjölfar annarra sýkinga. Með sameindalíffræðilegum aðferðum og tengingu
þeirra við faraldsfræðileg gögn auk þess sem veirusýkingar voru
útilokaðar, var sýnt fram á að nýr stofn/S. zoo/. auðkenndur ST209,
hafði borist til landsins og valdið faraldrinum. Stofninn reyndist ekki
mjög sjúkdómsvaldandi þar sem hann er ekki með svokölluð „superantigen“,
en ríkulega búinn hæfileikum til að klístra sig við slímhúð (pilus) og
valda langvarandi hósta. Kom það heim og saman við sjúkdómsmyndina.
Margan lærdóm má draga af faraldri smitandi hósta árið 2010 en til að
svo megi verða þarf að kynna ítarlega þær aðferðir sem leiddu til
niðurstöðu um orsakir sjúkdómsins.
Mikilvægast er að við gerum okkur grein fyrir að margir fleiri stofnar
bakteríunnar – og mun meira sjúkdómsvaldandi – gætu borist með sama
hætti til landsins. Ber þar einkum að líta til/Streptococcus equi/ sem
er sérhæfður sjúkdómsvaldur hjá hrossum og veldur kverkeitlabólgu.
Sértæk viðbragðsáætlun vegna kverkeitlabólgu verður kynnt á málþinginu.
Aðalfyrirlesarar málþingsins gegndu lykilhlutverki við greiningu
sjúkdómsins og eru leiðandi í rannsóknum á þessu sviði á heimsvísu:
* Andrew Waller, Centre for Preventive Medicine, Animal Health
Trust, Newmarket
* Richard Newton, Centre for Preventive Medicine, Animal Health
Trust, Newmarket
Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Fyrirlestrar og umræður
fara fram á *ensku*.
Hægt er að skrá sig í hádegisverð í Norræna húsinu á netfangið
skraning at mast.is <mailto:skraning at mast.is> fyrir 14. apríl.
Hádegisverðurinn kostar 3400 kr.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150414/ac715ee9/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150414/ac715ee9/attachment-0001.jpg>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: MalthingSmitandihostiDagskra_IS.pdf
Type: application/pdf
Size: 496843 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150414/ac715ee9/attachment-0002.pdf>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Program-english.pdf
Type: application/pdf
Size: 489187 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150414/ac715ee9/attachment-0003.pdf>
More information about the Gerlanet
mailing list