[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Staða rannsókna á kregðu í íslensku sauðfé.
Birkir Þór
birkirbr at hi.is
Mon Apr 27 08:52:21 GMT 2015
_Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og
hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að
Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar
til ykkar fólks._
*
*
*Fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.*
Fyrirlesari:*Sigríður Hjartardóttir, *líffræðingur á Keldum.**
**
Heiti erindis:***Staða rannsókna á kregðu í íslensku sauðfé**.*
**
Erindið verður haldið _fimmtudaginn 30. apríl kl. 12:20_, í bókasafni
Tilraunastöðvarinnar.
Kregða orsakast af /Mycoplasma ovipneumoniae/ bakteríunni og veldur
lungnasjúkdómi í sauðfé og geitum. Sjúkdómurinn einkennist af hósta,
andnauð og mæði og herjar aðallega á ung dýr. Síðla hausts árið 2013 var
sett á laggirnar rannsókn á lungnasjúkdómum í sauðfé að Tilraunastöð HÍ
í meinafræði að Keldum. Í samstarfi við MAST voru tekin sýni úr
sauðfjárlungum með einkenni kregðu víðsvegar að af landinu og lagt mat á
tíðni og útbreiðslu sjúkdómsins. Á opnum fyrirlestri fimmtudaginn 30.
apríl mun verða farið yfir stöðu rannsókna á sjúkdómnum og hvers má
vænta af áframhaldandi rannsóknum. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:20 og er
hann haldinn á bókasafninu á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.
_______________________________________________________________
Birkir Þór Bragason
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150427/659a8d22/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Bor?i ?slenskur - JPEG format_ed.jpg
Type: image/jpeg
Size: 19012 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150427/659a8d22/attachment-0001.jpg>
More information about the Gerlanet
mailing list