[ÖRFÍ]Málþing; Lærdómurinn af faraldri smitandi hósta í hrossum
Hjalti Andrason
hjalti.andrason at mast.is
Thu Apr 9 11:12:28 GMT 2015
Faraldur smitandi hósta gekk yfir hrossastofninn árið 2010. Þrátt fyrir að
um tiltölulega vægan sjúkdóm væri að ræða hafði hann lamandi áhrif á
hestamennskuna í landinu og alla atvinnustarfsemi henni tengdri.
Matvælastofnun, Tilraunastöðin á Keldum og Dýralæknafélag Íslands boða til
málþings um faraldur streptokokkasýkinga í íslenskum hrossum föstudaginn
17. apríl kl. 10:30 – 17:00 í sal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu
8 í Reykjavík. Dagskrá málþings er að finna á íslensku og ensku í
viðhengjum.
Langan tíma tók að greina orsök sjúkdómsins, m.a. vegna þess að þekkingu
skorti á stofnabreytileika hinnar annars vel þekktu bakteríu Streptococcus
zooepidemicus, sem fyrst og fremst var talin fylgja í kjölfar annarra
sýkinga. Með sameindalíffræðilegum aðferðum og tengingu þeirra við
faraldsfræðileg gögn auk þess sem veirusýkingar voru útilokaðar, var sýnt
fram á að nýr stofn S. zoo. auðkenndur ST209, hafði borist til landsins og
valdið faraldrinum. Stofninn reyndist ekki mjög sjúkdómsvaldandi þar sem
hann er ekki með svokölluð „superantigen“, en ríkulega búinn hæfileikum
til að klístra sig við slímhúð (pilus) og valda langvarandi hósta. Kom það
heim og saman við sjúkdómsmyndina.
Margan lærdóm má draga af faraldri smitandi hósta árið 2010 en til að svo
megi verða þarf að kynna ítarlega þær aðferðir sem leiddu til niðurstöðu
um orsakir sjúkdómsins.
Mikilvægast er að við gerum okkur grein fyrir að margir fleiri stofnar
bakteríunnar – og mun meira sjúkdómsvaldandi – gætu borist með sama hætti
til landsins. Ber þar einkum að líta til Streptococcus equi sem er
sérhæfður sjúkdómsvaldur hjá hrossum og veldur kverkeitlabólgu. Sértæk
viðbragðsáætlun vegna kverkeitlabólgu verður kynnt á málþinginu.
Aðalfyrirlesarar málþingsins gegndu lykilhlutverki við greiningu
sjúkdómsins og eru leiðandi í rannsóknum á þessu sviði á heimsvísu:
Andrew Waller, Centre for Preventive Medicine, Animal Health Trust,
Newmarket
Richard Newton, Centre for Preventive Medicine, Animal Health Trust,
Newmarket
Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Fyrirlestrar og umræður
fara fram á ensku.
Hægt er að skrá sig í hádegisverð í Norræna húsinu á netfangið
skraning at mast.is fyrir 14. apríl. Hádegisverðurinn kostar 3400 kr.
Með kveðju,
Hjalti Andrason
Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrar- og mannauðssvið / Office of Administration
_____________________________________ _______
Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 – 800 Selfoss – Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 – Fax : (+354) 530 4801 – www.mast.is
_____________________________________ _______
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150409/f04b133c/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 19073 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150409/f04b133c/attachment-0001.jpe>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: MalthingSmitandihostiDagskra_IS.pdf
Type: application/octet-stream
Size: 501672 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150409/f04b133c/attachment-0002.obj>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: MalthingSmitandihostiDagskra_EN.pdf
Type: application/octet-stream
Size: 493275 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20150409/f04b133c/attachment-0003.obj>
More information about the Gerlanet
mailing list