<html>
<head>
<meta http-equiv="content-type" content="text/html; charset=utf-8">
</head>
<body bgcolor="#FFFFFF" text="#000000">
<img alt="" src="cid:part1.01020807.07090704@hi.is" height="82"
width="709">
<p class="MsoNormal"><span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif""><b>Málþing
um faraldur streptokokkasýkinga í íslenskum hrossum</b><br>
</span></p>
<p class="MsoNormal"><span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Faraldur
smitandi hósta gekk yfir hrossastofninn árið 2010. Þrátt fyrir
að um tiltölulega vægan sjúkdóm væri að ræða hafði hann lamandi
áhrif á hestamennskuna í landinu og alla atvinnustarfsemi henni
tengdri. Matvælastofnun, Tilraunastöðin á Keldum og
Dýralæknafélag Íslands boða til málþings um faraldur
streptokokkasýkinga í íslenskum hrossum<b> föstudaginn 17. apríl
kl. 10:30 – 17:00</b> í sal Íslenskrar erfðagreiningar að
Sturlugötu 8 í Reykjavík. Dagskrá málþings er að finna á
íslensku og ensku í viðhengjum.</span> <br>
<br>
<span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Langan
tíma tók að greina orsök sjúkdómsins, m.a. vegna þess að
þekkingu skorti á stofnabreytileika hinnar annars vel þekktu
bakteríu <i>Streptococcus zooepidemicus</i>, sem fyrst og
fremst var talin fylgja í kjölfar annarra sýkinga. Með
sameindalíffræðilegum aðferðum og tengingu þeirra við
faraldsfræðileg gögn auk þess sem veirusýkingar voru útilokaðar,
var sýnt fram á að nýr stofn<i> S. zoo</i>. auðkenndur ST209,
hafði borist til landsins og valdið faraldrinum. Stofninn
reyndist ekki mjög sjúkdómsvaldandi þar sem hann er ekki með
svokölluð „superantigen“, en ríkulega búinn hæfileikum til að
klístra sig við slímhúð (pilus) og valda langvarandi hósta. Kom
það heim og saman við sjúkdómsmyndina.</span> <br>
<br>
<span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Margan
lærdóm má draga af faraldri smitandi hósta árið 2010 en til að
svo megi verða þarf að kynna ítarlega þær aðferðir sem leiddu
til niðurstöðu um orsakir sjúkdómsins. </span> <br>
<br>
<span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Mikilvægast
er að við gerum okkur grein fyrir að margir fleiri stofnar
bakteríunnar – og mun meira sjúkdómsvaldandi – gætu borist með
sama hætti til landsins. Ber þar einkum að líta til<i>
Streptococcus equi</i> sem er sérhæfður sjúkdómsvaldur hjá
hrossum og veldur kverkeitlabólgu. Sértæk viðbragðsáætlun vegna
kverkeitlabólgu verður kynnt á málþinginu. </span> <br>
<br>
<span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Aðalfyrirlesarar
málþingsins gegndu lykilhlutverki við greiningu sjúkdómsins og
eru leiðandi í rannsóknum á þessu sviði á heimsvísu:</span> <o:p></o:p></p>
<ul type="disc">
<li class="MsoNormal"
style="mso-margin-top-alt:auto;mso-margin-bottom-alt:auto;mso-list:l0
level1 lfo1"><span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Andrew
Waller, Centre for Preventive Medicine, Animal Health Trust,
Newmarket</span> <o:p></o:p></li>
<li class="MsoNormal"
style="mso-margin-top-alt:auto;mso-margin-bottom-alt:auto;mso-list:l0
level1 lfo1"><span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Richard
Newton, Centre for Preventive Medicine, Animal Health Trust,
Newmarket</span><o:p></o:p></li>
</ul>
<br>
<span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Málþingið
er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Fyrirlestrar og umræður fara
fram á <b>ensku</b>.</span> <br>
<br>
<span
style="font-size:10.0pt;font-family:"Arial","sans-serif"">Hægt
er að skrá sig í hádegisverð í Norræna húsinu á netfangið <a
moz-do-not-send="true" href="mailto:skraning@mast.is">skraning@mast.is</a>
fyrir 14. apríl. Hádegisverðurinn kostar 3400 kr.<br>
<br>
</span>
<p class="MsoNormal"><span style="mso-ansi-language:IS">_______________________________________________________________<o:p></o:p></span></p>
<span style="font-size:10.0pt;mso-ansi-language:IS">Birkir Þór
Bragason<o:p></o:p></span> <span
style="font-size:10.0pt;mso-ansi-language:IS"><br>
Tilraunastöð H.Í. í meinafræði að Keldum</span><br>
</body>
</html>