[Gandur] Hádegisfyrirlestur: Vandræðalegir víkingar á morgun kl. 12.05
Íris Ellenberger
irisel at hi.is
Mon Mar 15 15:49:39 GMT 2010
Kæru þjóðfræðingar
Katla Kjartansdóttir þjóðfræðingur og verkefnastjóri hjá
Þjóðfræðistofu flytur erindið Vandræðalegir Víkingar. Ímynd - Arfur –
Tilfinningar þriðjudaginn 16. mars kl. 12.05 í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands.
Fyrir örfáum árum tóku hugtökin „útrás“ og „útrásarvíkingar“ að óma í
íslensku samfélagi. Fjölmiðlar, forsetinn og fleiri tóku þau upp á
sína arma og gáfu þeim bæði merkingu og þunga. Í erindi sínu mun Katla
rýna í þessa tilteknu orðræðu þar sem greina má vinsæla (en stundum
vandræðalega) samfléttun þjóðararfs og viðskipta.
Þjóðararfur er vandræðahugtak og það er víkingahugtakið líka.
Samtvinnun þeirra í samfélagslegri orðræðu um viðskipti Íslendinga
erlendis er því vandmeðfarin - og jafnvel vandræðaleg. Í
fyrirlestrinum verður varpað ljósi á hvernig hin óljósa merking þeirra
hefur verið nýtt með margvíslegum hætti í gegnum tíðina. Lengi vel var
það einkum ferðamanna- og menningararfsiðnaðurinn sem gældi við þá
hugmynd að Íslendingar væru afkomendur víkinga, t.d. með sölu
„víkingahjálma“ í minjagripaverslunum og áður en menn vissu af var
„ekta víkingaþorp“ risið í Hafnarfirði. Einnig má nefna frægðarför
víkingaskipsins Íslendings til Vesturheims sem nú má skoða í
Víkingaheimum skammt frá Keflavíkurflugvelli.
Íslenskir sagnfræðingar hafa ekki verið á eitt sáttir um þessa
„víkingaarfsvæðingu“ og má í því sambandi minnast á ritdeilu um
ristastórt víkingasverð sem reisa átti á Melatorgi við enduropnum
Þjóðminjasafns Íslands árið 2004. Sagnfræðingar, og aðrir fræðimenn,
veittu einnig orðræðunni um hina svokölluðu “útrásarvíkinga” andóf en
hlutu lítinn hljómgrunn.
Nú í upphafi 21. aldar, á tímum hnattvæðingar og menningarlegrar
fjölbreytni, hljóta vinsældir slíkrar þjóðernisorðræðu þó að vekja
nokkra furðu. Hugmyndafræði nýfrjálshyggju og síðkapítalisma hefur á
undanförnum árum gegnsýrt íslenskt samfélag og þar með menningarstefnu
ríkisins. Leiða má að því líkum að markaðsvæðing þjóðararfsins sé angi
af þeirri stefnu.
Bestu kveðjur
Íris Ellenberger
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100315/ea86965e/attachment.html
More information about the Gandur
mailing list