[Gandur] Fwd: [Félag íslenskra fræða] Jóhannes B. Sigtryggsson fjallar um hina nýju Handbók um málnotkun nk. fimmtudag, 18. mars, á rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða

Eydis Bjornsdottir eydisb at gmail.com
Tue Mar 16 20:11:22 GMT 2010


---------- Forwarded message ----------
From: Yelena Sesselja Helgadóttir <sesselja at hi.is>
Date: 2010/3/16

Þriðja rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á þessu vormisseri verður
haldið *næstkomandi fimmtudag, 18. mars, kl. 20 í húsi Sögufélagsins,
Fischersundi 3*. Þar flytur *Jóhannes B. Sigtryggsson*, verkefnisstjóri á
málræktarsviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, fyrirlestur
sem hann nefnir *Handbók um málnotkun – tilurð og tilgangur*. Höfundur lýsir
erindi sínu á þessa leið:

*Handbók um málnotkun *er ný ítarleg handbók með 70 köflum eftir ýmsa
höfunda um málnotkun, réttritun og frágang texta. Auk þess eru í bókinni
upplýsingakaflar um ýmislegt sem varðar íslenskt mál, t.d. orðabækur,
íslensku sem annað mál og nýyrði. Bókin er ætluð öllum þeim sem sýsla
eitthvað við skrif og er gefin út á vegum málræktarsviðs Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum. Í erindinu er fjallað um uppruna verksins og
álitamál sem komu upp á verktímanum. Fjallað er um tilgang slíkrar bókar,
fyrir hverja hún er samin og hvernig slík handbók tengist verkefnum
málræktarsviðs Árnastofnunar.

Jóhannes B. Sigtryggsson er með M.A.-próf í íslenskri málfræði. Hann er
verkefnisstjóri á málræktarsviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum og meðal verkefna hans þar er að ritstýra *Handbók um málnotkun*.
Hann vinnur nú einnig að doktorsritgerð um málið á Ævisögu Jóns
Steingrímssonar.

Allir eru velkomnir.


Bestu kveðjur,
Sesselja Helgadóttir
formaður Félags íslenskra fræða
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100316/e0fb75d6/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list