[Gandur] Áhrif loftslagsbreytinga á náttúru, lífríki og samfélag - fréttatilkynning
Skrifstofa RA
ra at akademia.is
Mon Mar 15 10:57:27 GMT 2010
*Áhrif loftslagsbreytinga á náttúru, lífríki og samfélag*
ReykjavíkurAkademían stendur fyrir tveimur málstofum um áhrif
loftslagsbreytinga á náttúru, lífríki og samfélag.
Markmiðið er að fá gott yfirlit yfir staðreyndir og hugsanlegar afleiðingar
fyrir Ísland og Norðurslóðir, þær breytingar sem orðið hafa og þær sem kunna
að verða.
Málstofurnar verða í húsakynnum ReykjavíkurAkademíunnar á Hringbraut121, 4.
hæð, laugardagana 20 mars og 10. apríl, kl. 13 - 15:30
Laugardaginn 20. mars kl. 13:00:
*Náttúran næst okkur.*
Dagsskrá:
Jöklar á Íslandi - Helgi Björnsson, jöklafræðingur, prófessor HÍ
Lífríki sjávar og loftslagsbreytingar - Ólafur S. Ástþórsson,
aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunar
Gróður og vistkerfi - Ingibjörg Svala Jónsdóttir, vistfræðingur, prófessor
HÍ
Fuglar á faraldsfæti - Einar Ó Þorleifsson, náttúrufræðingur,
ReykjavíkurAkademíunni
Loftslag og landnýting - Bjarni Diðrik Sigurðsson, vistfræðingur prófessor
LbhÍ
Laugardaginn10. apríl kl. 13:00:
*Hnattrænt samhengi og hugsanleg áhrif loftslagsbreytinga á búsetu,
atvinnulíf og menningu*
Meðal fyrirlesara verður Halldór Björnsson, veðurfræðingur, Veðurstofu
Íslands og Björk Bjarnadóttir umhverfisþjóðháttafræðingur sem flytur erindið
“Hún heitir móðir jörð og hún er með hita” - um upplifanir og útskýringar
frumbyggja Kanada á loftslagsbreytingum.
--
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100315/dbb5ac5c/attachment.html
More information about the Gandur
mailing list