[Gandur] Jón Hnefill Aðalsteinsson látinn

Félag Þjóðfræðinga á Íslandi thjodfraedingar at gmail.com
Wed Mar 3 10:51:02 GMT 2010


Það eru dapurlegar fréttir sem berast okkur til eyrna í dag. Jón Hnefill
Aðalsteinsson prófessor emerítus í þjóðfræði er látinn. Stjórn Félags
þjóðfræðinga á Íslandi vottar aðstandendum Jóns Hnefils samúð sína. Við
vitum líka að fjölmargir meðlimir félagsins syrgja nú lærimeistara, kollega
og vin. Framlag hans til fræðigreinarinnar mun lifa áfram í verkum hans og
áhrifum.

f.h. stjórnar Félags þjóðfræðinga á Íslandi,
Óli Gneisti Sóleyjarson, formaður.

*Fréttatilkynning*

Jón Hnefill Aðalsteinsson andaðist í dag, 2. mars 2010, 82 ára að aldri, á
heimili sínu að Dalbraut 27 í Reykjavík. Jón Hnefill var fyrstur Íslendinga
prófessor í þjóðfræði og eftir hann liggja mörg rit, greinar og fyrirlestrar
um efnið auk ritsmíða um skáldleg efni og trúarleg, en hann var einnig
guðfræðingur.

Jón Hnefill fæddist 29. mars 1927 að Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, sonur
Ingibjargar Jónsdóttur húsmóður og Aðalsteins Jónssonar bónda. Hann var
kvæntur Svövu Jakobsdóttur rithöfundi, en hún lést árið 2004. Barn þeirra er
Jakob S. leikhúsfræðingur, en börn Jóns fyrir hjónaband eru Kristján Jóhann,
dósent í íslenskum bókmenntum við HÍ og Örlygur Hnefill lögmaður.

Jón Hnefill var stúdent frá MA árið 1948, lauk fil.kand. prófi í
trúarbragðasögu, trúarlífssálfræði og heimspeki frá Stokkhólmsháskóla 1958,
því næst cand.theol. frá HÍ 1960, fil.lic. í þjóðfræði frá Uppsalaháskóla
1966 og fil.dr. frá sama skóla 1979. Árið 1983 til 1984 var hann Honorary
Research Fellow við University College í London.

Starfsferill hans var að sama skapi fjölbreyttur. Hann var um skeið
blaðamaður á Morgunblaðinu, sóknarprestur í Eskifjarðarprestakalli,
skólastjóri Iðnskólans á Eskifirði og kennari við unglingaskólann þar,
gagnfræðaskólakennari í Reykjavík og menntaskólakennari í MH, stundakennari
við guðfræðideild HÍ auk heimspekideildar og félagsvísindadeildar,
stundakennari við Tækniskóla Íslands, Leiklistarskóla Íslands og
Þroskaþjálfaskóla Íslands, dósent í þjóðfræði við HÍ og loks prófessor. Hann
lét enn fremur félagsstörf til sín taka, bæði í námi og á starfsvettangi
sínum en einnig í stjórnmálum, fulltrúi Vöku í Stúdentaráði HÍ og formaður
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi, formaður Þjóðfræðafélags
Íslendinga, Sagnfræðingafélags Íslands, Félags menntaskólakennara og Hins
íslenska kennarafélags, og sat í stjórn norrænna samtaka kennara og
Átthagasamtaka Héraðsmanna, svo að það helsta sé nefnt. Meðal rita Jóns
Hnefils má nefna Kristnitökuna á Íslandi 1971, Under the Cloak,
doktorsritgerð hans, 1978, og Þjóðtrú og þjóðfræði 1985, en auk þess
annaðist hann, einn eða í félagi við aðra, fjölda þýðinga úr erlendum
tungum, t.a.m. á Frelsinu eftir John Stuart Mill. Síðasta rit Jóns Hnefils
var “Hið mystíska X”, er kom út á síðasta ári.

-- 
___________________
Félag þjóðfræðinga á Íslandi
www.akademia.is/thjodfraedingar
thjodfraedingar at gmail.com
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100303/dbd8c8d8/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list