[Gandur] Leiðsögn um sýninguna Ævispor

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Feb 5 12:59:00 GMT 2010


Leiðsögn um sýninguna 
Ævispor – útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur

Þriðjudaginn 9. febrúar mun Þóra Kristjánsdóttir listfræðingur og annar 
sýningarhöfunda veita leiðsögn um sýninguna Ævispor – útsaumsverk Guðrúnar 
Guðmundsdóttur. Leiðsögnin hefst kl. 12:05 fyrir framan Bogasal 
Þjóðminjasafnsins. Leiðsögnin er hluti af hádegisfyrirlestraröð safnsins, 
en í vor verður fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð. 
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Á sýningunni Ævispor má sjá útsaumsverk Guðrúnar sem hún hefur unnið með 
gömul handrit og forn útsaumuð klæði að fyrirmynd. Verk Guðrúnar hafa 
sterka skírskotun í arf og þjóðlegar hefðir Íslendinga. Þau eru dæmi um 
hvernig íslenskar konur í nútímanum nýta sér menningararfinn og sýna vel 
hvernig hefð og nýsköpun fara saman. Sýningin er liður í þeirri stefnu 
safnsins  að endurspegla samtímann og tengsl hans við gamlar hefðir. 

Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100205/8096cc1a/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 62629 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100205/8096cc1a/attachment-0001.gif 


More information about the Gandur mailing list