[Gandur] Þægileg blekking og beiskur raunveruleiki

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Mon Feb 8 08:53:24 GMT 2010


*ÍNOR og ReykjavíkurAkademían kynna:*

* *





*Fyrirlestraröð um ímyndir og sjálfsmyndir.*

*Í samstarfi við Háskólann á Bifröst*

* *

Annar fyrirlesturinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121
frá kl. 12:00 -13:00 föstudaginn 12. febrúar í fyrirlestrarsal á 4. Hæð.

Upptöku af fyrirlestrinum má nálgast á vef  Háskólans á Bifröst (
www.bifrost.is) á meðan röðin stendur yfir

Verkefnið er stutt af Reykjavíkurborg





*Þægileg blekking og beiskur raunveruleiki. *

*Sigurður Jóhannesson *



Íslendingum hættir til þess að ofmeta eigið mikilvægi. Þetta er ekki
nýtilkomið og Íslendingar eru ekki einir um þennan hugsunarhátt. Ekki er
víst að ofmetnaður sé skaðlegur að vissu marki, en hann verður það þegar
hann kemur í veg fyrir að látið sé af rangri hegðun. Ofmetnaðurinn náði
hámarki í bólunni. Yfirburðir Íslendinga voru meðal þess sem notað var til
þess að færa rök að því að bólan væri eitthvað annað en hún var. Eftir að
bankarnir hrundu mátti búast við að landsmenn endurmætu sjálfa sig,
hagstjórn og samskipti við aðrar þjóðir. Til dæmis mætti skoða það að
viðskipti landsmanna við útlönd hafa ekki vaxið meira en landsframleiðsla í
áratugi. Íslendingar skera sig úr að þessu leyti. Viðskipti við útlönd eru
sérstaklega mikilvæg fyrir smáþjóðir. Um tíma virtist endurmat komið í gang
en nú virðist hafa komið bakslag í þá umræðu. Á kaldastríðstímanum var
Ísland í lykilstöðu. Landsmenn nýttu sér það óspart, til dæmis í
landhelgisdeilum. En heimurinn hefur breyst og Íslendingar hafa misst þessa
stöðu. Þá má ekki láta ekki eins og ekkert hafi gerst.



Sigurður Jóhannesson lauk kandídatsprófi í hagfræði frá
Kaupmannahafnarháskóla árið 1987 og doktorsprófi í alþjóðaviðskiptum frá
Kent State University árið 2001. Hann hefur meðal annars unnið hjá
Kjararannsóknarnefnd, B.s.r.b. og Samtökum atvinnulífsins en hefur starfað á
Hagfræðistofnun frá 2002. Sigurður var ritstjóri Vísbendingar, tímarits um
viðskipti og efnahagsmál árin 1990-1993. Sérstakan áhuga hefur hann á
alþjóðaviðskiptum, erlendum fjárfestingum og umhverfismálum.

* *

Jón Ólafsson stýrir fundi og umræðum.



Allir velkomnir.


-- 
ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100208/88bb56a1/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: ?NOR og Reykjav?kurAkademian.pdf
Type: application/pdf
Size: 96895 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20100208/88bb56a1/attachment-0001.pdf 


More information about the Gandur mailing list