[Gandur] Leiðsögn um sýninguna Ása G. Wright – frá Íslandi til Trinidad

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Thu Dec 10 13:46:58 GMT 2009


Leiðsögn um sýninguna Ása G. Wright – frá Íslandi til Trinidad
Sunnudaginn 13. nóvember kl. 14:00 mun Inga Dóra Björnsdóttir 
mannfræðingur veita leiðsögn um sýninguna Ása G. Wright – frá Íslandi til 
Trinidad. Á sýningunni getur að líta hluta þeirra gripa sem Ása gaf 
safninu á 7. áratug síðustu aldar. Margir gripanna hafa ekki verið sýndir 
áður. Inga Dóra ritaði nýja ævisögu Ásu, Kona þriggja eyja, sem kom út í 
haust. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Áslaug Guðmundsdóttir, eða Ása G. Wright, fæddist að Laugardælum í Ölfusi 
12. apríl 1892. Hún lést í Port  of Spain á eynni Trinidad í Karabíska 
hafinu 6. febrúar 1971. Líf hennar var sannkallað ævintýri frá því hún var 
ung læknisdóttir á Íslandi þar til hún á efri árum rak gistiheimili í 
náttúruparadís á hitabeltiseyju. Persónuleiki  Ásu var stór í sniðum, hún 
lét hendur standa fram úr ermum og er hverjum þeim eftirminnileg  sem 
henni kynntust. Hún var af fyrirmönnum komin og var ákaflega stolt af 
uppruna sínum og ætt og vildi halda minningu ættarinnar á lofti. 
Ása var velgjörðarmaður Þjóðminjasafns Íslands og gaf safninu hluta 
búslóðar sinnar ásamt veglegri fjárupphæð.  Árið 1968 var stofnaður 
minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright. Sjóðurinn er í vörslu 
Þjóðminjasafns Íslands og er ætlað að standa straum af heimsóknum erlendra 
fræðimanna til landsins, til að flytja fyrirlestra á vegum safnsins um 
þætti í norænni menningu. Fyrirlestrar sjóðsins hafa verið gefnir út í 
sérstakri ritröð. Nýjasta ritið, sem er númer þrettán í ritröðinni, ber 
heitið Islands fine sølv  en ritin eru, líkt og Kona þriggja eyja, fáanleg 
í safnbúð Þjóðminjasafnsins.
Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík
s. 5302222/gsm 8242039
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091210/278eeec2/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 16895 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091210/278eeec2/attachment-0001.gif 


More information about the Gandur mailing list