[Gandur] Málþing til heiðurs Kristjáni Árnasyni á morgun.

Skrifstofa RA ra at akademia.is
Thu Dec 10 11:35:35 GMT 2009


*Af þeim sem skiptu um skapnað
*


**

*Málþing til heiðurs Kristjáni Árnasyni í tilefni af þýðingu hans á
Ummyndunum Óvíds.  *



Sú þrifnaðarsýsla Kristjáns Árnasonar að þýða *Ummyndanir* Óvíds er
stórviðburður í íslenskri bókmenntasögu því hverri þjóð er nauðsyn að eiga
þýðingar á helstu verkum heimsbókmenntanna.



Afreki Kristjáns verður fagnað með léttu málþingi í sal
ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð. föstudaginn 11. desember
kl. 16-18.



Erindi flytja:

Clarence E. Glad: *Ummyndanir við upphaf kristni*

Halldór Björn Runólfsson: *Ummyndanir og myndlistin*

Hjalti Snær Ægisson: *Fari ekki skáldin með fleipur: Gægst í Ummyndanir
Óvíds á íslensku*



Kristján Árnason les upp úr þýðingu sinni og Ingunn Ásdísardóttir les upp
brot úr sama kafla úr þýðingu Jóns Espólíns sýslumanns og sagnaritara, sem
til er í eiginhandarriti hans.



Viðar Hreinsson framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar stýrir samkomunni
af sinni alkunnu snilld.



Að erindum loknum verður boðið upp á léttar veitingar að hætti
ReykjavíkurAkademíunnar.



Allir velkomnir


-- 
ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra at akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20091210/3f5c1e1c/attachment.html 


More information about the Gandur mailing list