[Gandur] 13. maí kl. 12: Gunnar Karlsson, leiðsögn í Þjóðminjasafni

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Sat May 10 11:07:26 GMT 2008


Næstkomandi þriðjudag, 13. maí kl. 12:05, mun Gunnar Karlsson 
sagnfræðingur leiða gesti um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. Hann kallar 
leiðsögn sína: Að lesa Íslandssögu út úr grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. 

Að lesa Íslandssögu út úr grunnsýningu Þjóðminjasafns 
  
Grunnsýning Þjóðminjasafnsins er í fljótu bragði séð aðallega sýning á 
gripum með stuttum skýringartextum og ekki alltaf augljóst hvers vegna 
einmitt þessir gripir eru valdir til sýningar. Sýningin er þó í 
grundvallaratriðum söguleg, val gripa, röðun þeirra og uppsetning ræðst af 
því að þeir segi sem mesta og mikilvægasta Íslandssögu. Leiðsögumaður 
ætlar að ganga um safnið og leitast við að skýra hver sú þjóðarsaga er sem 
einstök sýningaratriði eiga að segja. Sýnt verður fram á að þau segi sögu 
af landnámi Íslands og sambúð lands og þjóðar um aldir, trúarskiptum frá 
heiðni til kristni, goðaveldi þjóðveldistímans, auðlegð miðaldakirkjunnar, 
starfi vefkvenna, plágunum miklu, áhrifum Englendinga á enskri öld, 
siðaskiptum til Lútherstrúar, upphafi bókaprentunar, einveldi konungs og 
verslunareinokun, upphafi þéttbýlismyndunar, lífi þjóðar í baðstofum og á 
árabátum, þjóðríkismyndun á 19. öld og atvinnubyltingunni miklu í upphafi 
20. aldar. 

 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080510/4e8d1668/attachment.html


More information about the Gandur mailing list