Næstkomandi þriðjudag, 13. maí kl. 12:05, mun Gunnar Karlsson sagnfræðingur
leiða gesti um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. Hann kallar leiðsögn sína:
Að lesa Íslandssögu út úr grunnsýningu Þjóðminjasafnsins.

Að lesa Íslandssögu út úr grunnsýningu Þjóðminjasafns

Grunnsýning Þjóðminjasafnsins er í fljótu bragði séð aðallega sýning á
gripum með stuttum skýringartextum og ekki alltaf augljóst hvers vegna
einmitt þessir gripir eru valdir til sýningar. Sýningin er þó í grundvallaratriðum
söguleg, val gripa, röðun þeirra og uppsetning ræðst af því að þeir segi
sem mesta og mikilvægasta Íslandssögu. Leiðsögumaður ætlar að ganga um
safnið og leitast við að skýra hver sú þjóðarsaga er sem einstök sýningaratriði
eiga að segja. Sýnt verður fram á að þau segi sögu af landnámi Íslands
og sambúð lands og þjóðar um aldir, trúarskiptum frá heiðni til kristni,
goðaveldi þjóðveldistímans, auðlegð miðaldakirkjunnar, starfi vefkvenna,
plágunum miklu, áhrifum Englendinga á enskri öld, siðaskiptum til Lútherstrúar,
upphafi bókaprentunar, einveldi konungs og verslunareinokun, upphafi þéttbýlismyndunar,
lífi þjóðar í baðstofum og á árabátum, þjóðríkismyndun á 19. öld og atvinnubyltingunni
miklu í upphafi 20. aldar.