[Gandur] Hádegisfyrirlestur16. júní - Michael Light

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Jun 13 11:00:58 GMT 2008


Hádegisfyrirlestur hjá Þjóminjasafni Íslands

Mánudaginn 16. júní mun bandaríski ljósmyndarinn Michael Light halda 
hádegisfyrirlestur um myndir sínar í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns 
Íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 12:00. 

Michael lauk MFA frá San Fransisco Art Institute árið 1993 og hefur unnið 
með loftmyndir í víðasta skilningi – hann hefur sjálfur myndað úr lofti en 
einnig hefur hann rannsakað myndasöfn NASA með enduskoðun á myndefni 
tunglfaranna í huga, hann hefur gefið út bækurnar FULL MOON sem er 
afrakstur af 32.000 myndum geimfaranna sem til tunglsins hafa farið – 
einnig hefur hann gefið út bókina 100 SUNS sem inniheldur endurskoðun á 
myndum tengdum kjarnorkusprengingum Bandaríkjamanna. Michael Light er 
Guggenheim-styrkþegi og hyggst mynda Ísland úr lofti og tengja þær myndir 
við landslagið á tunglinu. 

Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík

Tel.: (354) 530 2222
GSM: (354) 824 2039
http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080613/6703e1dd/attachment.html


More information about the Gandur mailing list