[Gandur] 17. júní á Þjóðminjasafni Íslands

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Jun 13 10:54:38 GMT 2008


17. júní á Þjóðminjasafni Íslands
Þjóðminjasafn Íslands verður í sumarskapi á 17. Júní. Nóg verður um að 
vera fyrir alla fjölskylduna, nýjar sýningar, ratleikir og svo verður 
forsetabíll Sveins Björnssonar, fyrsta forseta lýðveldisins, til sýnis 
fyrir utan safnið frá klukkan 14:00-17:00. 
Bifreiðin er af Packard-gerð, frá árinu 1942, og var fyrsta 
forsetabifreiðin hér á landi og notuð fyrstu ár Sveins í embætti forseta 
Íslands. Bíllinn hefur nýlega verið endurgerður, er í eigu 
Þjóðminjasafnsins er geymdur á Bessastöðum.
Bílinn var keyptur notaður frá Bandaríkjunum en bifreið sömu gerðar hafði 
verið gjöf Roosevelts forseta til Sveins Björnssonar. Upprunalega 
bifreiðin hefur þó ekki varðveist, því hún var um borð í Goðafossi þegar 
skipið var skotið í kaf í nóvember 1944.
Eins er minnt á nýjar sýningar Þjóðminjasafnsins:
YFIR HAFIÐ OG HEIM – íslenskir munir frá Svíþjóð
Endurkast - samsýning átta íslenskra ljósmyndara
Í þokunni  - sýning franska ljósmyndarans Thomas Humery
Lífshlaup - um lífshlaup sex núlifandi Íslendinga


Með bestu kveðju,
Helga Vollertsen
Kynningarstjóri
Þjóðminjasafni Íslands
v/Suðurgötu
101 Reykjavík

Tel.: (354) 530 2222
GSM: (354) 824 2039
http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080613/085e06db/attachment.html


More information about the Gandur mailing list