[Gandur] Í dag: Fyrirlestur Margaret Ezell í ReykjavíkurAkademíunni klukkan 16.15

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Wed Jun 18 09:20:18 GMT 2008


Fyrirlestur Margaret Ezell í ReykjavíkurAkademíunni

18. júní 2008 kl 16:15

Bandaríski bókmenntafræðingurinn Margaret J.M. Ezell heldur opinn 
fyrirlestur á vegum ReykjavíkurAkademíunnar í húsnæði hennar að 
Hringbraut 121 _*miðvikudaginn 18. júní kl 16:15.*_ *
*

*Fyrirlesturinn ber yfirskriftina /Blank Spaces: Studying Handwritten 
Cultures/ og **fjallar um handritamenningu á tímum prentvæðingar og 
rannsóknir á henni.*

Davíð Ólafsson, doktorsnemi í sagnfræði, kynnir Ezell og verk hennar. 
Davíð er að leggja lokahönd á doktorsritgerð um Sighvat Grímsson 
Borgfirðing, ritstörf hans og íslenska handritamenningu á 19. öld í 
samhengi alþjóðlegra rannsókna.

Að loknum fyrirlestri Ezell og umræðum mun Viðar Hreinsson 
bókmenntafræðingur og framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar fjalla um 
fræðimanninn, skáldið og skrifarann Gísla Konráðsson (1787-1877) og 
kynna nýja rannsóknarstofnun innan ReykjavíkurAkademíunnar, /Stofnun 
Gísla Konráðssonar í handritarannsóknum síðari alda/, sem stofnsett 
verður á fæðingardegi hans 18. júní.

Margaret Ezell er prófessor í enskum bókmenntum við Texas A&M University 
í bandaríkjunum með bókmenntir 17. og 18. aldar að sérsviði. Hún hefur 
undanfarna tvo áratugi verið í framvarðasveit þeirra fræðimanna sem 
rannsakað hafa hlutverk og virkni handritamenningar eftir tilkomu 
prenttækni Gutenbergs. Ezell hefur meðal annars lagt áherslu á 
endurskoðun bókmenntasögu kvenna fyrir atbeina handritarannsókna síðari 
alda og veitt nýja sýn á höfundarhugtakið í ljósi handritaðrar miðlunar 
á árnýöld, einkum í áhrifamiklu riti sínu /Social Authorship and the 
Advent of Print /(1999).

Rannsóknir og kenningar Margaret Ezell eru einkar áhugaverðar fyrir 
íslenska fræðimenn í ljósi þess að miðlun og neysla bókmennta hérlendis 
fór að mestu leyti fram á vettvangi handritamenningar fram undir 
aldamótin 1900. Það er því mikill fengur og heiður fyrir 
ReykjavíkurAkademíuna og Stofnun Gísla Konráðssonar að fá fræðimann í 
fremstu röð á því vaxandi sviði bókmennta og menningarsögu sem 
handritarannsóknir síðari alda eru til að kynna rannsóknir sínar og 
hugmyndir.

Allar nánari upplýsingar gefa Viðar Hreinssson (vidar at akademia.is 
<mailto:vidar at akademia.is>) 844 8645 og Davíð Ólafsson 
(do32 at st-andrews.ac.uk <mailto:do32 at st-andrews.ac.uk> og s. 8484198)


Meðal ritverka Margaret Ezell eru:

'The Laughing Tortoise: Speculations on Manuscript Sources and Women's 
Book History', /English Literary Renaissance/ 38/2 (2008).

 'Domestic Papers: Manuscript Culture and Early Modern Women's Life 
Writing', /Genre and Women's Life Writing in Early Modern/ England (2007).

 'Do Manuscript Studies Have a Future in Early Modern Manuscript 
Studies', /Shakespeare Studies/ 32 (2004).

 'Early Modern Women and Manuscript Texts', /English Manuscript Studies, 
1100-1700/, 9 (2000), Ritstjóri ásamt Peter Beal.

/ Social Authorship and the Advent of Print/ (1999).

 /Cultural Artefacts and the Production of Meaning: The Page, The Image, 
and The Body/ (1994). Ásamt Katherine O'Brien O'Keeffe.

/ Writing Women's Literary History/ (1993).

/ The Patriarch's Wife: Literary Evidence and the History of the Family/ 
(1987).

 

-
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080618/c564451e/attachment.html


More information about the Gandur mailing list