[Gandur] Til gagns og til fegurðar - ný ljósmyndabók

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Mon Feb 11 15:15:15 GMT 2008


Til gagns og til fegurðar 
Sjálfsmyndir í ljósmyndum og klæðnaði á Íslandi 1860-1960
Út er komin vegleg ljósmyndabók eftir Æsu Sigurjónsdóttur listfræðing. 
Bókin Til gagns og til fegurðar er gefin út í tengslum við samnefnda 
sýningu í Myndasal Þjóðminjasafnsins. Í bókinni er varpað fram spurningum 
um klæðnað og útlit Íslendinga 1860-1960 og sýnt hvernig ljósmyndir 
endurspegla sjálfsmynd þjóðarinnar á hverjum tíma. 
Hér má líka fá svar við ótal spurningum um klæðnað og útlit, og brugðið er 
upp dæmum um klæðnað Íslendinga í fjölmörgum myndum í hundrað ár. Hvernig 
varð þjóðbúningurinn til? Af hverju vildu karlar ekki vera í þjóðlegum 
fötum? Hvenær fóru konur að ganga í buxum? Hversu íslensk er lopapeysan?
Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur hefur rannsakað sögu ljósmyndunar og 
menningarlegt og félagslegt hlutverk ljósmynda á Íslandi í fortíð og 
nútíð. Greinar eftir Æsu hafa birst í tímaritum, sýningarskrám og bókum 
hérlendis og erlendis. Má þar nefna bækur hennar um Sigríði Zoëga 
ljósmyndara (2000) og Ísland í sjónmáli um franska ljósmyndara á Íslandi 
1845-1900 (2000). Bókin Til gagns og til fegurðar byggir á rannsóknum 
hennar á íslenskri búningasögu í ljósmyndum.
Bókin fæst í Safnbúð Þjóðminjasafnsins.

Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20080211/26bddd00/attachment.html


More information about the Gandur mailing list