[Gandur] Þjóðháttasöfnun um sumardvöl barna í sveit - spurningar vakna í Þjóðminjasafninu

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Nov 2 18:01:39 GMT 2007


Þjóðháttasöfnun um sumardvöl barna í sveit
Spurningar vakna í Þjóðminjasafninu
Þjóðminjasafn Íslands sendir um þessar mundir út spurningaskrána Sumardvöl 
barna í sveit. Tilgangurinn er að safna upplýsingum frá því á fyrri hluta 
20. aldar til dagsins í dag um sveitaveru barna og unglinga úr þéttbýli. 
Ekki hefur áður verið safnað sérstaklega upplýsingum um þetta efni. 
Þeir sem fá skrána í hendur eru beðnir um að taka vel á móti henni, en með 
því að svara hjálpa menn Þjóðminjasafninu að varðveita mikilvæga þekkingu 
sem annars er hætt við að færi forgörðum. Heimildarmenn eru beðir um að 
segja frá sinni eigin reynslu á þessum vettvangi.
Fólk sem verið hefur í sumardvöl í sveit og vill taka þátt í verkefninu er 
hvatt til að snúa sér til Þjóðháttasafns Þjóðminjasafns Íslands. 
Heimilisfangið er Suðurgata 43, 101 Reykjavík. Sími 530 2200.
Safnið vill bæði komast í samband við fólk sem var í sumardvöl gegn gjaldi 
og þá sem þurftu að vinna fyrir sér. Ennfremur hefur safnið áhuga að senda 
spurningaskrá til þeirra sem voru í eins konar ,,leikskólum” til sveita 
eða á sveitaheimilum.
Þjóðminjasafnið hefur frá því 1960 safnað heimildum um þjóðhætti með 
spurningaskrám. Meðal annars hefur verið aflað upplýsinga um lifnaðarhætti 
í þéttbýli, trúarlíf, fiskvinnslu, sveitabúskap og hernámsárin, svo nokkur 
dæmi séu tekin.
Svör heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni Þjóðminjasafnins en hafa 
einnig verið slegin inn í rafrænan gagnagrunn. Takmarkaður aðgangur er þó 
að grunninum. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Þjóðháttasafni 
Þjóðminjasafns Íslands.

Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20071102/662f6de4/attachment.html


More information about the Gandur mailing list