Þjóðháttasöfnun um sumardvöl
barna í sveit

Spurningar vakna í Þjóðminjasafninu

Þjóðminjasafn Íslands sendir um
þessar mundir út spurningaskrána Sumardvöl barna í sveit. Tilgangurinn
er að safna upplýsingum frá því á fyrri hluta 20. aldar til dagsins í dag
um sveitaveru barna og unglinga úr þéttbýli. Ekki hefur áður verið safnað
sérstaklega upplýsingum um þetta efni.

Þeir sem fá skrána í hendur eru
beðnir um að taka vel á móti henni, en með því að svara hjálpa menn Þjóðminjasafninu
að varðveita mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum.
Heimildarmenn eru beðir um að segja frá sinni eigin reynslu á þessum vettvangi.

Fólk sem verið hefur í sumardvöl
í sveit og vill taka þátt í verkefninu er hvatt til að snúa sér til Þjóðháttasafns
Þjóðminjasafns Íslands. Heimilisfangið er Suðurgata 43, 101 Reykjavík.
Sími 530 2200.

Safnið vill bæði komast í samband
við fólk sem var í sumardvöl gegn gjaldi og þá sem þurftu að vinna fyrir
sér. Ennfremur hefur safnið áhuga að senda spurningaskrá til þeirra sem
voru í eins konar ,,leikskólum” til sveita eða á sveitaheimilum.

Þjóðminjasafnið hefur frá því 1960
safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám. Meðal annars hefur verið
aflað upplýsinga um lifnaðarhætti í þéttbýli, trúarlíf, fiskvinnslu, sveitabúskap
og hernámsárin, svo nokkur dæmi séu tekin.

Svör heimildarmanna eru varðveitt
í skjalasafni Þjóðminjasafnins en hafa einnig verið slegin inn í rafrænan
gagnagrunn. Takmarkaður aðgangur er þó að grunninum. Nánari upplýsingar
eru veittar hjá Þjóðháttasafni Þjóðminjasafns Íslands.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is