[Gandur] Fw: [Hi-starf] Þjóðháttasöfnun um sumardvöl barna í sveit - spurningar vakna í Þjóðminjasafninu

Terry Gunnell terry at hi.is
Fri Nov 2 20:28:41 GMT 2007


----- Original Message ----- 
From: frettatilkynning at thjodminjasafn.is 
To: lhi at lhi.is ; handverk at handverkoghonnun.is ; sim at simnet.is ; feb at feb.is ; rosat at hi.is ; ljosmynd at itn.is ; arni at ignis.is ; efi at mbl.is ; postlisti at safnmenn.is ; gammabrekka at hi.is ; gandur at hi.is ; skrudda at listar.hi.is ; reykjavikur at akademia.is ; rsi at rsi.is ; hi-starf at hi.is ; erl-nem at hi.is ; hi-nem at hi.is ; rosat at hi.is ; arnastofnun at arnastofnun.is ; fsi at instarch.is ; AddressListTooLong-Suppressed: 
Sent: Friday, November 02, 2007 6:01 PM
Subject: [Hi-starf] Þjóðháttasöfnun um sumardvöl barna í sveit - spurningar vakna í Þjóðminjasafninu


Þjóðháttasöfnun um sumardvöl barna í sveit
Spurningar vakna í Þjóðminjasafninu 

Þjóðminjasafn Íslands sendir um þessar mundir út spurningaskrána Sumardvöl barna í sveit. Tilgangurinn er að safna upplýsingum frá því á fyrri hluta 20. aldar til dagsins í dag um sveitaveru barna og unglinga úr þéttbýli. Ekki hefur áður verið safnað sérstaklega upplýsingum um þetta efni. 

Þeir sem fá skrána í hendur eru beðnir um að taka vel á móti henni, en með því að svara hjálpa menn Þjóðminjasafninu að varðveita mikilvæga þekkingu sem annars er hætt við að færi forgörðum. Heimildarmenn eru beðir um að segja frá sinni eigin reynslu á þessum vettvangi. 

Fólk sem verið hefur í sumardvöl í sveit og vill taka þátt í verkefninu er hvatt til að snúa sér til Þjóðháttasafns Þjóðminjasafns Íslands. Heimilisfangið er Suðurgata 43, 101 Reykjavík. Sími 530 2200. 

Safnið vill bæði komast í samband við fólk sem var í sumardvöl gegn gjaldi og þá sem þurftu að vinna fyrir sér. Ennfremur hefur safnið áhuga að senda spurningaskrá til þeirra sem voru í eins konar ,,leikskólum” til sveita eða á sveitaheimilum. 

Þjóðminjasafnið hefur frá því 1960 safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám. Meðal annars hefur verið aflað upplýsinga um lifnaðarhætti í þéttbýli, trúarlíf, fiskvinnslu, sveitabúskap og hernámsárin, svo nokkur dæmi séu tekin. 

Svör heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni Þjóðminjasafnins en hafa einnig verið slegin inn í rafrænan gagnagrunn. Takmarkaður aðgangur er þó að grunninum. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Þjóðháttasafni Þjóðminjasafns Íslands. 


Bestu kveðjur / Best regards 
Rúna K. Tetzschner 
kynningarstjóri / Public Relation Manager 
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland 
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík 
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248 
netf. runa at thjodminjasafn.is 
veff. http://www.thjodminjasafn.is 



--------------------------------------------------------------------------------


_______________________________________________
Þessi póstur var sendur á póstlistann Hi-starf at hi.is.
Efni hans og innihald eru á ábyrgð sendanda og endurspegla
ekki endilega stefnu Háskóla Íslands í einstökum málum.
Sjá http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf og news:hi.listar.hi-starf.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20071102/64793813/attachment.html


More information about the Gandur mailing list