[Gandur] FW: Jón Hnefill áttræður - Málþing um þjóðfræði í Þjóðminjasafninu 30. mars, kl. 13-18

vth at hi.is vth at hi.is
Wed Mar 28 13:57:05 GMT 2007


 
Þjóðfræði og þakkarskuld á áttræðisþingi - fræðaöldungurinn Jón Hnefill
Aðalsteinsson á stórafmæli! 

Fjörlegt  <http://www.thjodminjasafn.is/adofinni?CacheRefresh=1> afmælisþing
verður haldið til heiðurs Jóni Hnefli Aðalsteinssyni áttræðum í
fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 30. mars klukkan 13-18.  
Lærisveinar og -meyjar hans flytja margbreytilega fyrirlestra í framhaldi og
tilefni af merkisafmælinu en Jón Hnefill er fæddur 29. mars árið 1927. 

Um leið og málþinginu er ætlað að heiðra Jón Hnefil og hans mikla
frumkvöðlastarf í þágu  <http://www.felags.hi.is/page/thjodfraedi>
þjóðfræðinnar á Íslandi gefa fyrirlestrarnir hugmynd um þá fjölbreytni og
grósku sem ríkir í þjóðfræðirannsóknum við upphaf 21. aldar - grósku sem
sprottin er af fræjum sem gamli lærimeistarinn sáði. 

Til áttræðisþingsins efna nemendur Jóns Hnefils Aðalsteinssonar frá ýmsum
tímum með fulltingi  <http://www.felags.hi.is/> Félagsvísindadeildar Háskóla
Íslands,  <http://www.thjodminjasafn.is/> Þjóðminjasafns Íslands og
<http://www.akademia.is/thjodfraedingar/> Félags Þjóðfræðinga á Íslandi. 

Jón Hnefill Aðalsteinsson er löngu orðinn þjóðkunnur fyrir margvísleg störf
sín. Auk brautryðjendastarfs í þjóðfræðikennslu hafa fáir lagt jafn mikið af
mörkum til þjóðfræðirannsókna hér á landi og hann. Jón Hnefill hefur ritað
fjölda bóka og eftir hann hafa birst margar ritgerðir í íslenskum og
erlendum tímaritum. Áhugaefni hans eru gjarnan af trúarlegum toga:
kristnitakan, norræn trú og goðsögur, þjóðtrú síðustu alda um álfa, tröll,
afturgöngur og galdrameistara, en þó einnig ævintýri, spádómar, gátur og
tækifæriskveðskapur og þá er fátt eitt nefnt. 

Dagskrá afmælisþingsins: 
Dagskrá málþingsins til heiðurs Jóni Hnefli er líka fjölbreytt: Valdimar Tr.
Hafstein setur þingið og fer með inngangsorð til heiðurs afmælisbarninu.
Katla Kjartansdóttir flytur fyrirlesturinn "Fávíst barn fetar fræðimanns
braut" og minnist þess hvernig Jóni Hnefli tókst að vekja áhuga hennar fyrir
hinu þjóðfræðilega í tilverunni. Kristinn Schram segir "Ágætt að hafa
svolítinn húmor" og rekur þræði í fari og fræðum Jóns saman við þær
þjóðfræðilegu áherslur sem hann temur sér sjálfur í dag. 

Fyrirlesararnir hyggja að fortíðinni og fjallar fyrirlestur Jóns Jónssonar,
"Á mörkum mennskunnar", um sögur af flökkurum. Síðan rekur Marteinn Helgi
Sigurðsson skipti á nöfnum í goðakenningum eins og Sig-Týr, hanga-Týr og
farma-Týr, og Rósa Þorsteinsdóttir segir frá söfnun og hljóðritunum
alþýðufræða, sagna og kveðskapar sem fram fóru á 20. öld á vegum Stofnunar
Árna Magnússonar. 
En framtíðina skal líka byggja og Rakel Pálsdóttir fjallar um jafn
nútímalegt efni og keðjubréf á netinu, rekur sameiginleg einkenni þeirra og
veltir fyrir sér hvað liggur baki. Kynnt verður rannsókn Gunnellu
Þorgeirsdóttur: "Ein mynd er á við þúsund orð: "Fótósjoppaðar" ljósmyndir
sem flökkusagnir". Loks spyr Kristín Einarsdóttir sígildrar
áramótaspurningar: "Hvernig fannst þér skaupið?" Hún ræðir um grínefni í
íslenskum fjölmiðlum með áherslu á Áramótaskaup sjónvarpsins og er
fyrirlestur hennar sá síðasti á dagskrá afmælisþingsins.  

Óhætt er að fullyrða að líflegt verður á málþingi þjóðfræðinga til heiðurs
Jóni Hnefli Aðalsteinssyni áttræðum og í lok dags verður skálað í léttum
veitingum í Myndasal Þjóðminjasafnsins.  

Fjölbreyttur starfsferill Jóns Hnefils Aðalsteinssonar: 
Afmælisbarnið sjálft þarf vart að kynna en svolítil upprifjun er við hæfi í
tilefni merkisdagsins. Jón Hnefill er fæddur á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 29.
mars 1927. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1948, fil.cand. í
trúarbragðasögu, trúarsálarfræði og heimspeki frá Stokkhólmháskóla 1958,
cand.theol. frá Háskóla Íslands 1960, fil.lic. í þjóðfræði frá
Uppsalaháskóla 1966 og lauk síðan doktorsprófi í grein sinni frá sama skóla
árið 1979. 
 
 Starfsferill Jóns Hnefils er óvenju fjölbreyttur. Hann gegndi embætti
sóknarprests í Eskifjarðarprestakalli á árabilinu 1960 til 1966, kenndi
jafnframt við unglingaskólann á Eskifirði 1961 til 1964 og var skólastjóri
Iðnskólans þar veturinn 1963 til 1964. Um árabil var hann blaðamaður á
Morgunblaðinu en hóf svo kennslu við Háskóla Íslands árið 1967, fyrsta árið
sem stundakennari í guðfræðideild og síðan í heimspekideild í tvo áratugi.
Árin 1983 til 1984 var hann Honorary Research Fellow við University College
í London. Jón Hnefil varð fyrstur manna dósent í þjóðfræði við
félagsvísindadeild Háskóla Íslands árið 1988 og prófessor 1992. Hann lagði
grunninn að og mótaði kennslu í þessari fræðigrein hér á landi. Árið 1992
var hann jafnframt gerður að félaga í The Folklore Fellows, an International
Network of Folklorist, sem stofnað var af the Finnish Academy of Science and
Letters. Hann var svo kjörinn heiðursfélagi í Félagi þjóðfræðinga á Íslandi
árið 1998. 
 
 Jafnhliða háskólakennslu kenndi Jón Hnefill við Menntaskólann við Hamrahlíð
tímabilið 1969 til 1988 og hefur auk þess kennt við Gagnfræðaskólann við
Lindargötu, Tækniskólann, Leiklistarskólann og Þroskaþjálfaskólann. Hann
hefur alla tíð látið til sín taka í félagsmálum á starfssviði sínu, var
formaður Þjóðfræðafélagsins, Sagnfræðingafélagsins, Félags
menntaskólakennara  og Hins íslenska kennarafélags. Einnig var hann um skeið
í stjórn Nordiska Lärarrådet. 
 
Dagskrá

13.00-14.00: Þjóðfræði og þakkarskuld

Valdimar Tr. Hafstein: Inngangsorð

Katla Kjartansdóttir: Fávíst barn fetar fræðimannsins braut

Kristinn Schram: „Ágætt að hafa svolítinn húmor" 

 

 Kaffihlé – 14.00-14.30

 

 14.30-15.30: Að fortíð skal hyggja 


Málstofustjóri: Anna Þrúður Þorkelsdóttir

Jón Jónsson: Á mörkum mennskunnar: Sögur af flökkurum

Marteinn Helgi Sigurðsson: Sig-Týr, hanga-Týr, farma-Týr: Skipti á nöfnum í
goðakenningum

Rósa Þorsteinsdóttir: Tveir dagar á Vaðbrekku í ágúst 1964: Hljóðritanir og
heimildamenn 

 

 Kaffihlé – 15.30-16.00

 

 16.00-17.00: 
 er framtíð skal byggja

Málstofustjóri: Rúna K. Tetzschner

Rakel Pálsdóttir: Keðjubréf á Internetinu

Gunnella Þorgeirsdóttir: Ein mynd er á við þúsund orð: „Fótósjoppaðar"
ljósmyndir sem flökkusagnir

Kristín Einarsdóttir: Hvernig fannst þér skaupið? 

 Skálað í hvítvíni í lok dags

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070328/259a269a/attachment.html


More information about the Gandur mailing list