[Gandur] Af bók í bíó. Baltasar Kormákur leikstjóri fjallar um kvikmyndina Mýrina. 13. apríl kl. 12 í Þjóðminjasafni Íslands
frettatilkynning at thjodminjasafn.is
frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Thu Apr 12 16:13:03 GMT 2007
Fundaröð um kvikmyndir og sjónvarp
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían stendur fyrir fundum á
föstudögum í hádeginu (kl. 12-13) þar sem fjallað verður um kvikmyndir og
sjónvarp. Fundirnir verða haldnir hálfsmánaðarlega í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands og verður sá fyrsti n.k. föstudag 13. apríl:
Föstudaginn 13. apríl:
AF BÓK Í BÍÓ
Baltasar Kormákur leikstjóri fjallar um kvikmynd sína Mýrina.
Föstudaginn 27. apríl:
HVERJIR SJÁ ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR?
Anna María Karlsdóttir framleiðandi fjallar um markað fyrir íslenskar
kvikmyndir.
Föstudaginn 11. maí:
AÐ DREPA MANN
Björn B Björnsson leikstjóri fjallar um kvikmynd sína Kalda slóð.
Föstudaginn 25. maí:
DAGSKRÁRSTEFNA SJÓNVARPSINS
Þórhallur Gunnarsson dagskrárstjóri Sjónvarpsins fjallar um dagskrárstefnu
hins nýja fyrirtækis.
Fundirnir hefjast stundvíslega kl 12 á því að framsögumenn flytja hálftíma
erindi en að því loknu gefst tækifæri til fyrirspurna og umræðna en
fundunum lýkur kl 13. Fundirnir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis.
Nánari upplýsingar gefa:
Anna María Karlsdóttir, 847 3330
Ásgrímur Sverrisson, 861 9126
Björn B Björnsson, 696 6660
Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070412/a0d43ac9/attachment.html
More information about the Gandur
mailing list