[Gandur] Aðalfundur

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Thu Apr 12 11:05:24 GMT 2007


Félag þjóðfræðinga á Íslandi boðar til aðalfundar fimmtudaginn 26.  
apríl kl. 19.30. Fundurinn verður haldinn í húsi Sögufélagsins við  
Fischersund. Að aðalfundi loknum, kl. 20.00, verður þemakvöld um  
munnlega hefð og eddukvæði (nánar auglýst síðar).

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1. fundur settur
2. fundarritari og fundarstjóri skipaður
3. skýrsla stjórnar
4. skýrsla gjaldkera
5. kjör stjórnar
6. önnur mál
7. fundi slitið

Auglýst er eftir framboðum í tvær stöður í stjórn félagsins, formann  
og ritara. Áhugasamir, vinsamlegast hafið samband við undirritaða.  
Hér er tækifæri fyrir áhugasamt fólk að láta að sér kveða og taka  
þátt í skemmtilegu starfi.

Vonumst til að sjá sem flesta!

Stjórnin

Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh








More information about the Gandur mailing list