[Gandur] Bekkir, kistur og sæti í Þjóðminjasafni. Arndís S. Árnadóttir fjallar um snikkaraverk fyrri alda í Þjóðminjasafni Íslands 10. apríl kl. 12.10

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Apr 3 14:33:16 GMT 2007


Bekkir, kistur og sæti í Þjóðminjasafni
Snikkaraverk fyrri alda
Arndís S. Árnadóttir listsagnfræðingur eys úr viskubrunnum í 
Þjóðminjasafni Íslands 10. apríl klukkan 12:10

Í næstu hádegisleiðsögn sérfræðinga í Þjóðminjasafninu verður þrædd slóð 
timbursmíða og handverks um grunnsýninguna og lesið í nokkra nytjahluti á 
biskupstólum, höfðingjasetrum og í lágreistum húsakosti þorra fólks á 
Íslandi. Allt frá landnámsöld var það hið veglegasta starf að vera smiður 
og að smíða, skapa og gera merkti oft hið sama. Þrátt fyrir að hér hafi 
lengst af ekki verið lærðir handverksmenn á sama hátt og í öðrum löndum, 
var víða um land listfengt fólk sem smíðaði nytjahluti úr járni, kopar, 
silfri, beini, horni og tré. „Þeir smíða alls konar búsgögn, sem vel eru 
nothæf, þótt eigi séu þau jafnsnoturlega gerð og af lærðum 
handverksmönnum“ segir í Ferðabók Eggerts og Bjarna frá 18. öld. Í lausum 
húsmunum eins og kistum, bekkjum og sætum sem varðveitt eru í 
Þjóðminjasafninu birtast ýmis fagurfræðileg einkenni sem gefa til kynna 
tengsl við útlönd og fyrirmyndir eru sóttar í tíðaranda og stíl sem ríkir 
í nágrannalöndunum. Kistur skipuðu lengst af mikilvægan sess á íslenskum 
heimilum en víkja smám saman í kjölfar þéttbýlismyndunar og ýmissa 
húsabóta fyrir fjölbreyttari gerðum húsgagna. 

Arndís S. Árnadóttir er listsagnfræðingur og starfar á miðlunarsviði 
Þjóðminjasafns Íslands en stundar jafnframt doktorsnám í sagnfræði þar sem 
rannsóknarefni hennar tengist sögu húsgagna og híbýlahátta á Íslandi allt 
frá iðnbyltingu til samtímans.


Opnunartími Þjóðminjasafnsins um páska:
Skírdagur: Opið 11-17
Föstudagurinn langi: LOKAÐ
Laugardagur á undan Páskadegi: Opið 11-17
Páskadagur: LOKAÐ
Annar í Páskum (mánudagur): LOKAÐ


Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relations Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20070403/64d05307/attachment.html


More information about the Gandur mailing list