[Gandur] Fyrirlestur Hélène Magnússon um rósaleppaprjón og íleppamynstur 16. nóv. kl. 12:10 –

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Tue Nov 14 14:36:44 GMT 2006


Fyrirlestur Hélène Magnússon um rósaleppaprjón og íleppamynstur. 
Í fyrirlestrarsalnum í Þjóðminjasafninu 16. nóv. kl. 12:10 – sýning á 
verkum hennar á Torginu

Fimmtudaginn 16. nóv. kl. 12:10 mun listakonan Hélène Magnússon flytja 
erindi um rósaleppaprjón og íleppamynstur í fyrirlestrarsalnum í 
Þjóðminjasafni Íslands. Hélène mun m.a. kynna bók sína Rósaleppaprjón í 
nýju ljósi sem nýlega kom út hjá Sölku forlagi. Hún hefur hannað eigin 
prjónamynstur, íleppa og flíkur með rósaleppaprjóni. Í fyrirlestrinum 
rekur hún sögu hins forna íslenska rósaleppaprjóns og aðferðir við gerð 
íleppa. Rósaleppar eða íleppar eru prjónuð innlegg sem voru notuð í 
sauðskinnsskó eða roðsskó til þæginda og skrauts. Segja má að Hélène haldi 
til haga gamalli séríslenskri þekkingu sem nánast hefur glatast en 
jafnframt gefur hún fólki hugmyndir um hvernig megi hagnýta þessa þekkingu 
við nútímahönnun. Sýning stendur yfir á verkum Hélène á Torginu í 
Þjóðminjasafninu og fá gestir nú gott tækifæri til að skoða hana í 
tengslum við fyrirlestur listakonunnar sjálfrar. Það er ókeypis inn og 
hannyrðafólk er hvatt til að fjölmenna.

Sýningin stendur til 2. des.

Hélène Magnússon er fædd í Frakklandi árið 1969. Hún lauk meistaraprófi í 
lögum og starfaði um skeið sem lögmaður í París en söðlaði um árið 1995 og 
flutti til Íslands þar sem hún hóf síðar myndlistar- og hönnunarnám. 
Hélène útskrifaðist frá textíl- og fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands 
árið 2004 og hefur tekið þátt í nokkrum hönnunarsýningum á Íslandi og 
erlendis. Hún starfar nú sjálfstætt sem hönnuður og sækir gjarnan 
innblástur í gamla íslenska handmennt sem hún túlkar af mikilli hollustu 
en þróar jafnframt á nýjan og ferskan hátt. 
Sjá nánar um Hélène á slóðinni www.helenemagnusson.com



Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 5302248 eða 530-2222
eða 691-3214
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061114/b1d5ed39/attachment.html


More information about the Gandur mailing list