[Vid-stund] Fyrirtæki verður til: Saga Meniga fyrstu fimm árin. Þriðjudaginn 29. okt. kl. 12-13 í Hátíðasal HÍ

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Fri Oct 25 09:31:48 GMT 2013


Fyrirtæki verður til

Óskilgetið afkvæmi efnahagshrunsins

Saga Meniga fyrstu fimm árin: Frá stofnun til leiðandi stöðu

- fyrirlestraröð um nýsköpun og stofnun fyrirtækja í boði Háskóla Íslands

Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga og hraður vöxtur þess frá stofnun árið 2009 
verður umfjöllunarefni í fyrirlestraröðinni ?Fyrirtæki verður til? 
þriðjudaginn 29. október 2013. Erindið verður í Hátíðasal Háskóla Íslands 
og hefst það klukkan 12 og stendur í tæpa klukkustund. Georg Lúðvíksson, 
framkvæmdastjóri og einn stofnenda, mun fara yfir sögu Meniga frá 
hugmyndstigi til dagsins í dag. 

Saga Meniga er stutt en viðburðarík. Fyrirtækið var stofnað í kjölfar 
efnahagshrunsins vorið 2009 og hefur vöxtur þess verið ævintýri líkastur. 
Meniga er nú markaðsleiðandi á sviði heimilisfjármála- og netbankalausna í 
Evrópu. Yfir 15 bankar í 11 löndum nýta sér hugbúnað og ráðgjöf frá Meniga 
og hafa um 10 milljónir manna aðgang að lausnum fyrirtækisins. Starfsmenn 
eru rúmlega 60 og gert er ráð fyrir áframhaldandi örum vexti.  Meniga 
hlaut Vaxtarsprotann 2013 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu 
sprotafyrirtækis undanfarið ár. Fyrirtækið nær tífaldaði sölutekjur sínar 
milli áranna 2011 og 2012. Þá hefur fyrirtækið hlotið fleiri 
viðurkenningar bæði innanlands og utan á síðustu árum.

Í fyrirlestraröðinni ?Fyrirtæki verður til? fjalla frumkvöðlar og 
stjórnendur íslenskra fyrirtækja um hvernig nýsköpun getur fætt af sér 
atvinnuskapandi starfsemi. Fyrirlesarar útskýra frumhugmyndirnar, hvernig 
fyrirtækin urðu til, hvaða hindranir þurfti að yfirstíga í fyrstu og á 
langri leið. Jafnframt víkja þeir að því hvernig fyrirtækin hafa lagað sig 
að nýjum aðstæðum eða tekið gríðarlegum breytingum frá því þau hófu fyrst 
rekstur.

Markmið Háskóla Íslands með fyrirlestraröðinni ?Fyrirtæki verður til? er 
að auka vitund almennings, stúdenta og starfsmanna háskólans um gildi 
nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs ásamt því að ýta undir hugmyndir, verkefni 
og sprotafyrirtæki sem verða ný aflstöð í atvinnulífinu.

Stefna Háskóla Íslands er að styrkja og hraða uppbyggingu á vísindastarfi 
og rannsóknatengdu framhaldsnámi og örva þannig nýsköpun í vísindum ásamt 
því að efla stuðning við sprotafyrirtæki vísindamanna og nemenda með 
atvinnu og verðmætasköpun í huga.

Stúdentar, starfsfólk og allir þeir sem áhuga hafa á nýsköpun, hagnýtingu 
rannsókna og uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs eru hvattir til að sækja 
fyrirlesturinn og fylgjast með dagskrá fyrirlestrarraðarinnar.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og er aðgangur ókeypis. Að 
erindinu loknu verður boðið upp á hressingu.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20131025/806116e8/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list