Fyrirtæki verður til

Óskilgetið afkvæmi efnahagshrunsins

Saga Meniga fyrstu fimm árin:
Frá stofnun til leiðandi stöðu

- fyrirlestraröð um nýsköpun og stofnun
fyrirtækja í boði Háskóla Íslands

Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga og hraður
vöxtur þess frá stofnun árið 2009 verður umfjöllunarefni í fyrirlestraröðinni
„Fyrirtæki verður til“ þriðjudaginn 29. október 2013. Erindið verður
í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst það klukkan 12 og stendur í tæpa klukkustund.
Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda, mun fara yfir sögu
Meniga frá hugmyndstigi til dagsins í dag.

Saga Meniga er stutt en viðburðarík.
Fyrirtækið var stofnað í kjölfar efnahagshrunsins vorið 2009 og hefur vöxtur
þess verið ævintýri líkastur. Meniga er nú markaðsleiðandi á sviði heimilisfjármála-
og netbankalausna í Evrópu. Yfir 15 bankar í 11 löndum nýta sér hugbúnað
og ráðgjöf frá Meniga og hafa um 10 milljónir manna aðgang að lausnum fyrirtækisins.
Starfsmenn eru rúmlega 60 og gert er ráð fyrir áframhaldandi örum vexti.
Meniga hlaut Vaxtarsprotann 2013 sem er viðurkenning fyrir öfluga
uppbyggingu sprotafyrirtækis undanfarið ár. Fyrirtækið nær tífaldaði sölutekjur
sínar milli áranna 2011 og 2012. Þá hefur fyrirtækið hlotið fleiri viðurkenningar
bæði innanlands og utan á síðustu árum.

Í fyrirlestraröðinni „Fyrirtæki verður
til“ fjalla frumkvöðlar og stjórnendur íslenskra fyrirtækja um hvernig
nýsköpun getur fætt af sér atvinnuskapandi starfsemi. Fyrirlesarar útskýra
frumhugmyndirnar, hvernig fyrirtækin urðu til, hvaða hindranir þurfti að
yfirstíga í fyrstu og á langri leið. Jafnframt víkja þeir að því hvernig
fyrirtækin hafa lagað sig að nýjum aðstæðum eða tekið gríðarlegum breytingum
frá því þau hófu fyrst rekstur.

Markmið Háskóla Íslands með fyrirlestraröðinni
„Fyrirtæki verður til“ er að auka vitund almennings, stúdenta og starfsmanna
háskólans um gildi nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs ásamt því að ýta undir
hugmyndir, verkefni og sprotafyrirtæki sem verða ný aflstöð í atvinnulífinu.

Stefna Háskóla Íslands er að styrkja
og hraða uppbyggingu á vísindastarfi og rannsóknatengdu framhaldsnámi og
örva þannig nýsköpun í vísindum ásamt því að efla stuðning við sprotafyrirtæki
vísindamanna og nemenda með atvinnu og verðmætasköpun í huga.

Stúdentar, starfsfólk og allir þeir
sem áhuga hafa á nýsköpun, hagnýtingu rannsókna og uppbyggingu fjölbreytts
atvinnulífs eru hvattir til að sækja fyrirlesturinn og fylgjast með dagskrá
fyrirlestrarraðarinnar.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir
og er aðgangur ókeypis. Að erindinu loknu verður boðið upp á hressingu.