[Vid-stund] Spennandi erindi í Hátíðasal HÍ á þriðjudag kl. 12 - Óskilgetið afkvæmi efnahagshrunsins - Fyrirtæki verður til

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Mon Oct 28 09:24:26 GMT 2013


 Boðskort
? Fyrirtæki verður til ?
Óskilgetið afkvæmi
efnahagshrunsins
Saga Meniga fyrstu fimm árin: Frá stofnun til leiðandi stöðu
Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga og hraður vöxtur þess frá stofnun árið 
2009 verður umfjöllunarefni næsta viðburðar í fyrirlestraröðinni 
?Fyrirtæki verður til?. 
Georg Lúðvíksson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda, fer yfir sögu Meniga 
frá 
hugmyndastigi til dagsins í dag.
Þér er boðið á fyrirlesturinn sem fer fram í Hátíðasal Aðalbyggingar 
Háskóla Íslands 
þriðjudaginn 29. október kl. 12.
Saga Meniga er stutt en viðburðarík. Fyrirtækið var stofnað vorið 2009 í 
kjölfar efnahagshrunsins og hefur vöxtur þess verið ævintýri líkastur. 
Meniga er nú markaðsleiðandi á sviði heimilisfjármála- og netbankalausna í 
Evrópu. Yfir 15 bankar í 11 löndum nýta sér hugbúnað og ráðgjöf frá Meniga 
og hafa um 10 milljónir manna aðgang að lausnum fyrirtækisins. Starfsmenn 
eru rúmlega 60 og gert er ráð fyrir áframhaldandi örum vexti. Meniga hlaut 
Vaxtarsprotann 2013 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu 
sprotafyrirtækis undanfarið ár.
Kristín Ingólfsdóttir, 
rektor Háskóla Íslands
Nánari upplýsingar má finna á:
hi.is/fyrirtaeki_verdur_til
 
 
 
 
 



-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20131028/29253348/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 193998 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20131028/29253348/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list