[Vid-stund] Hvaða tækifæri eru í norðurljósunum? Örráðstefna um hlutverk gagnrýnna rannsókna í ferðaþjónustu, Hátíðasal Háskóla Íslands fimmtudaginn 27. október, kl. 17:00-18:00.

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Wed Oct 26 14:34:59 GMT 2011


Hvaða tækifæri eru í norðurljósunum?
Örráðstefna um hlutverk gagnrýnna rannsókna í ferðaþjónustu

Hátíðasalur Háskóla Íslands fimmtudaginn 27. október, kl. 17:00-18:00.

Í kjölfar hrunsins hefur ferðaþjónusta á Íslandi fengið mikla athygli. 
Margir eru stórhuga og hyggja á mikla fjárfestingu, en oft vill brenna við 
að opinberu fé jafnt sem fé einkaaðila sé varið svo að segja að óathuguðu 
máli í verkefni innan ferðaþjónustu. Með í huga gamla máltækið að ?kapp er 
best með forsjá? vilja aðilar í íslensku háskólasamfélagi leggja til 
umræðunnar á hvaða grunni betur mætti byggja til framtíðar. Frumforsendur 
nýsköpunar og markaðsstarfs í ferðaþjónustu liggja í öflugu og gagnrýnu 
rannsóknarstarfi.

Fundurinn hefst á örfáum aðfararorðum um tilefni og tilurð fundarins. Þar 
á eftir mun fræðafólk stíga á stokk og í stuttum 5 mínútna glærulausum 
erindum og fjalla um eftirfarandi dæmi. Að því loknu verður opnað fyrir 
umræður og spurningar og eru aðilar úr greininni sem og fjölmiðlafólk 
sérstaklega hvatt til að mæta í þágu hreinskiptinna og opinna 
skoðanaskipta.



Nánari dagskrá er að finna hér<
http://www.unak.is/static/files/Frettir/orradstefna_ferdatjonusta_2011.pdf
>.


Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við Edward H. Huijbens, 
Rannsóknamiðstöð ferðamála, edward at unak.is

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111026/6c00ce01/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 172830 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111026/6c00ce01/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list