[Vid-stund] "Nýtt líkan Mintzbergs um stjórnun" Runólfur Smári Steinþórsson á Háskólatorgi,HT-101, þriðjudaginn 1. nóv. kl. 12:00
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Thu Oct 27 13:48:36 GMT 2011
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar
Nýtt líkan Mintzbergs um stjórnun
HT-101, þriðjudaginn 1. nóv. kl. 12:00
Kenningar Henry Mintzbergs hafa um langt skeið haft sinn sess í
stjórnunarfræðunum. Doktorsritgerð Mintzbergs frá árinu 1973 þótti
tímamótaverk og varpaði þá nýju ljósi á hlutverk og verkefni stjórnenda.
Ritverk Mintzbergs síðan þá eru mörg og hann hefur sett mark sitt á
fræðasvið stjórnunar og stefnumótunar í frekar víðum skilningi, þ.e. á
sviði stjórnunar, skipulags fyrirtækja og stefnumótunar. Ein af nýjustu
bókum hans hefur titilinn Managing (2009) og þar er að finna nýtt líkan
yfir stjórnun sem miðlar sýn Mintzbergs á fyrirbærið eftir
áratugarannsóknir. Í fyrirlestrinum verður þessu líkani gerð skil og
fjallað um það með hliðsjón af bók Mintzbergs og öðrum þeim heimildum sem
vitnað verður til.
Runólfur Smári Steinþórsson er prófessor við Viðskiptafræðideild
Allir velkomnir
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111027/5f7e3973/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 134662 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111027/5f7e3973/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list