[Vid-stund] V eða W - hvert stefna vestræn hagkerfi? Gylfi Magnússon á Háskólatorgi, HT-101, þriðjudaginn 22. nóv. kl. 12-13
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Wed Nov 16 15:52:26 GMT 2011
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: V eða W - hvert stefna vestræn
hagkerfi?
Háskólatorg, HT-101, þriðjudaginn 22. nóv. kl. 12-13
Haustið 2008 hrikti mjög í fjármálakerfum flestra Vesturlanda. Í kjölfarið
varð snarpur samdráttur í efnahagslífi nær allra landanna, sérstaklega
árið 2009. Um skeið virtist sem hið versta væri liðið hjá en nú eru enn
blikur á lofti. Fjármálakrísan er augljóslega ekki lengur fyrst og fremst
bankakrísa heldur einnig í mörgum tilfellum orðin alvarleg
ríkisfjármálakrísa.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um þá stöðu sem upp er komin, aðdragandinn
rakinn og skoðað hvaða sviðsmyndir hægt er að draga upp fyrir framtíðina í
ljósi þess sem nú liggur fyrir. Horft verður til óróleikans í Evrópu en
einnig á stöðuna í Bandaríkjunum, þar sem saman fer mikill fjárlaga- og
viðskiptahalli, miklar opinberar skuldir og illviðráðanlegar
lífeyrisskuldbindingar, til Japan, þar sem ríkt hefur stöðnun í nær tvo
áratugi og opinberar skuldir slá öll met og Kína, þar sem m.a. eru
verulegar áhyggjur af fasteignaverðsbólu og stöðu bankakerfisins.
Gylfi Magnússon er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111116/2b9a3fe8/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 152590 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111116/2b9a3fe8/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list