Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar:
V eða W - hvert stefna vestræn hagkerfi?

Háskólatorg, HT-101, þriðjudaginn 22.
nóv. kl. 12-13

Haustið 2008 hrikti mjög í fjármálakerfum
flestra Vesturlanda. Í kjölfarið varð snarpur samdráttur í efnahagslífi
nær allra landanna, sérstaklega árið 2009. Um skeið virtist sem hið versta
væri liðið hjá en nú eru enn blikur á lofti. Fjármálakrísan er augljóslega
ekki lengur fyrst og fremst bankakrísa heldur einnig í mörgum tilfellum
orðin alvarleg ríkisfjármálakrísa.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um þá
stöðu sem upp er komin, aðdragandinn rakinn og skoðað hvaða sviðsmyndir
hægt er að draga upp fyrir framtíðina í ljósi þess sem nú liggur fyrir.
Horft verður til óróleikans í Evrópu en einnig á stöðuna í Bandaríkjunum,
þar sem saman fer mikill fjárlaga- og viðskiptahalli, miklar opinberar
skuldir og illviðráðanlegar lífeyrisskuldbindingar, til Japan, þar sem
ríkt hefur stöðnun í nær tvo áratugi og opinberar skuldir slá öll met og
Kína, þar sem m.a. eru verulegar áhyggjur af fasteignaverðsbólu og stöðu
bankakerfisins.

Gylfi Magnússon er dósent við Viðskiptafræðideild
Háskóla Íslands