[Vid-stund] Íslensk fyrirtækjamenning: Gylfi Dalmann Aðalsteinsson á Háskólatorgi, HT-101, þriðjudaginn 15. nóv. kl. 12:10-13:00

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Wed Nov 9 15:23:41 GMT 2011


Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Íslensk fyrirtækjamenning
Háskólatorg HT-101, þriðjudaginn 15. nóv. kl. 12:10-13:00

Fyrirtækjamenning hefur stundum verið talin einn mikilvægasti þátturinn í 
árangri skipulagsheilda. Rannsóknir hafa sýnt fram á sterk tengsl á milli 
fyrirtækjamenningar og árangurs. Hugtakið er flókið og byggist á samspili 
þátta eins og viðhorfi, venjum, gildum, trú, hegðun einstaklinga og táknum 
ýmiskonar. Í málstofunni verður gerð grein fyrir íslenskri 
fyrirtækjamenningu og íslenskum rannsóknum á fyrirtækjamenningu. Til að 
mæla fyrirtækjamenningu íslenskra skipulagsheilda var stuðst við aðferð 
Denison.  Í málstofunni verður sagt frá ólíkum skilgreiningum á hugtakinu 
fyrirtækjamenning, greint verður frá mælitæki Denison til að mæla 
fyrirtækjamenningu. Það er ýmislegt sem bendir til að íslenskar 
skipulagsheildir eigi margt sameiginlegt þegar kemur að 
fyrirtækjamenningu.


Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er dósent við Viðskiptafræðideild
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111109/30af59ef/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 139205 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111109/30af59ef/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list