Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar:
Íslensk fyrirtækjamenning

Háskólatorg HT-101, þriðjudaginn 15.
nóv. kl. 12:10-13:00

Fyrirtækjamenning hefur stundum verið
talin einn mikilvægasti þátturinn í árangri skipulagsheilda. Rannsóknir
hafa sýnt fram á sterk tengsl á milli fyrirtækjamenningar og árangurs.
Hugtakið er flókið og byggist á samspili þátta eins og viðhorfi, venjum,
gildum, trú, hegðun einstaklinga og táknum ýmiskonar. Í málstofunni verður
gerð grein fyrir íslenskri fyrirtækjamenningu og íslenskum rannsóknum á
fyrirtækjamenningu. Til að mæla fyrirtækjamenningu íslenskra skipulagsheilda
var stuðst við aðferð Denison.  Í málstofunni verður sagt frá ólíkum
skilgreiningum á hugtakinu fyrirtækjamenning, greint verður frá mælitæki
Denison til að mæla fyrirtækjamenningu. Það er ýmislegt sem bendir til
að íslenskar skipulagsheildir eigi margt sameiginlegt þegar kemur að fyrirtækjamenningu.

Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er dósent
við Viðskiptafræðideild