[Vid-stund] Bréf frá námsbókasafni

Sólveig Ástvaldsdóttir solveias at hi.is
Wed Dec 15 11:19:09 GMT 2010


Bréf til kennara 

Ágætu kennarar. 

Senn líður að upphafi vormisseris og mun starfsfólk Landsbókasafns Íslands 
- Háskólabókasafns, eins og áður,  breyta lánstíma valinna rita í samræmi 
við óskir kennara svo nemendur hafi greiðari aðgang að þeim. Til þess að 
bækurnar séu komnar á námsbókasafn þegar nemendur fá leslista í hendur er 
mikilvægt að kennarar sendi sem allra fyrst lista til námsbókasafns yfir 
þær bækur sem þeir óska eftir að fái skemmri lánstíma.  Best væri að fá 
bókalistana senda fyrir áramót, en þeir sem það gera fá tryggingu fyrir 
því að bækurnar verði komnar á námsbókasafn við upphaf kennslu í janúar. 
Vegna mikilla anna á námsbókasafni við upphaf misseris getur orðið einhver 
bið á því að bókalistar sem berast mér eftir áramót verði afgreiddir. 

Á næstu dögum er stefnt að því að taka niður bækur þeirra námskeiða sem nú 
eru skráð á námsbókasafni Lbs.-Hbs. á haustmisseri.  Vinsamlegast látið 
mig vita fyrir 19. desember ef þið viljið að bækur ákveðinna námskeiða 
standi áfram í hillu á námsbókasafni. 

 

Með kærri jólakveðju, 

Sólveig D. Ögmundsdóttir 
umsjónarmaður námsbókasafns Lbs.-Hbs. 
namsbok at bok.hi.is 
 
 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20101215/c1cdec52/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list