Bréf til kennara

Ágætu kennarar.

Senn líður að upphafi vormisseris og mun starfsfólk Landsbókasafns Íslands
- Háskólabókasafns, eins og áður,  breyta lánstíma valinna rita í
samræmi við óskir kennara svo nemendur hafi greiðari aðgang að þeim. Til
þess að bækurnar séu komnar á námsbókasafn þegar nemendur fá leslista í
hendur er mikilvægt að kennarar sendi sem allra fyrst lista til námsbókasafns
yfir þær bækur sem þeir óska eftir að fái skemmri lánstíma.  Best
væri að fá bókalistana senda fyrir áramót, en þeir sem það gera fá tryggingu
fyrir því að bækurnar verði komnar á námsbókasafn við upphaf kennslu í
janúar.  Vegna mikilla anna á námsbókasafni við upphaf misseris getur
orðið einhver bið á því að bókalistar sem berast mér eftir áramót verði
afgreiddir.

Á næstu dögum er stefnt að því að taka niður bækur þeirra námskeiða sem
nú eru skráð á námsbókasafni Lbs.-Hbs. á haustmisseri.  Vinsamlegast
látið mig vita fyrir 19. desember ef þið viljið að bækur ákveðinna námskeiða
standi áfram í hillu á námsbókasafni.

Með kærri jólakveðju,

Sólveig D. Ögmundsdóttir

umsjónarmaður námsbókasafns Lbs.-Hbs.

namsbok@bok.hi.is