[Vid-stund] Bréf til kennara
Sólveig Ástvaldsdóttir
solveias at hi.is
Wed Dec 15 12:07:39 GMT 2010
Bréf til kennara
Ágætu kennarar.
Senn líður að upphafi vormisseris og mun starfsfólk Landsbókasafns Íslands
? Háskólabókasafns, eins og áður, breyta lánstíma
valinna rita í samræmi við óskir kennara svo nemendur hafi greiðari aðgang
að þeim. Til þess að bækurnar séu komnar á námsbókasafn
þegar nemendur fá leslista í hendur er mikilvægt að kennarar sendi sem
allra fyrst lista til námsbókasafns yfir þær bækur sem þeir óska
eftir að fái skemmri lánstíma. Best væri að fá bókalistana senda fyrir
áramót. Þeir sem það gera fá tryggingu fyrir því að bækurnar verði
komnar á námsbókasafnið við upphaf kennslu í janúar. Vegna mikilla anna á
námsbókasafni við upphaf misseris getur orðið einhver bið
á því að bókalistar sem berast eftir áramót verði afgreiddir.
Á næstu dögum er stefnt að því að taka niður bækur þeirra námskeiða sem nú
eru skráð á námsbókasafnið Lbs.-Hbs. á haustmisseri.
Vinsamlegast látið mig vita fyrir 19. desember ef þið viljið að bækur
ákveðinna námskeiða standi áfram í hillu á námsbókasafni.
Með kærri jólakveðju,
Sólveig D. Ögmundsdóttir, umsjónarmaður námsbókasafns Lbs.-Hbs.
Landsbókasafn Íslands ? Háskólabókasafn | Arngrímsgötu 3 - 107 Reykjavík |
netfang: namsbok at bok.hi.is | sími: 525 5781
Leiddu hugann að umhverfinu áður en þú prentar út tölvupóst.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20101215/bf674ca0/attachment.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/png
Size: 7243 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20101215/bf674ca0/attachment.png
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 711 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20101215/bf674ca0/attachment.jpe
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image002.jpg
Type: image/jpeg
Size: 2071 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20101215/bf674ca0/attachment.jpg
More information about the Vid-stund
mailing list