[Vid-stund] Af hverju brást ríkið? Hvernig endurbyggjum við það? Opinn hádegisfyrirlestur Páls Skúlasonar prófessors nk. föstudag í Þjóðminjasafni
Margrét S. Björnsdóttir
msb at hi.is
Tue Oct 13 11:04:34 GMT 2009
Af hverju brást ríkið? Hvernig endurbyggjum við það?
Opinn hádegisfyrirlestur Páls Skúlasonar prófessors nk. föstudag kl.
12-13.00 í Þjóðminjasafni
Nk. föstudag þann 16. október bjóða Siðfræðistofnun og Stofnun
stjórnsýslufræða til opins fyrirlestrar um eitt lykilverkefna okkar
samtíma um ríkið og endurreisn þess, en hugmyndafræðilegar deilur í
stjórnmálum Vesturlanda síðustu áratugina hafa að verulegu leyti snúist um
hlutverk ríkis og markaðar í þróun samfélaga. Hugmyndin um markaðsfrelsið
hefur verið ráðandi, en hún felur í sér að ríkið eigi að skipta sér sem
minnst af málefnum markaðarins. Einkavæðing íslenskra banka og veikt
eftirlit með þeim af hálfu ríkisins er eitt fjölmargra dæma um þetta.
Eftir hrun bankanna og hremmingar kreppunnar verður ekki hjá því komist að
spyrja á ný um hlutverk ríkisins.
Í erindinu verður fjallað um ólíkar grundvallarhugmyndir um ríkið og færð
rök fyrir þeirri tilgátu að við Íslendingar höfum ekki lagt næga rækt við
mikilvæga þætti þess. Stjórnmálaumræða hafi ekki náð að þroskast með
heilbrigðum hætti vegna þessarar vanrækslu. Við komumst ekki lengur hjá
því að vinna skipulega að því á næstu árum að endurbyggja ríki okkar.
Fundarstjóri Gunnar Helgi Kristinsson prófessor.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091013/51cf50f8/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list