[Vid-stund] Minnt á, örfá pláss laus morgunmálþing á fimmtudag: Til kennara í viðskipta- og hagfr.deild: Hvernig getum við varðveitt góðan starfsanda á tímum niðurskurðar og skerðinga á kjörum starfsmanna?

Margrét S. Björnsdóttir msb at hi.is
Mon Oct 12 09:48:25 GMT 2009


Hvernig getum við varðveitt góðan starfsanda á tímum niðurskurðar og 
skerðinga á kjörum starfsmanna? 
Fimmtudaginn 15. október kl. 8.30-10.00 á Grand hótel í Reykjavík.  
Annað málþing haustsins í samstarfi Stofnunar stjórnsýslufræða og 
stjórnmála og Félags forstöðumanna ríkisstofnana  

Fyrirlestrar og  holl ráð; Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Arndís Ósk 
Jónsdóttir, Stefán Eiríksson og Erna Einarsdóttir.  
Skráning: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/starfsandi  
Verð; kr. 3.900.- og er morgunverður innifalinn.  

Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þessa viðfangsefnis frammi fyrir þeim 
áskorunum sem stjórnendur standa í þeim niðurskurði og skipulagsbreytingum 
sem framundan eru í rekstri opinberra stofnana, bæði ríkis og raunar 
sveitarfélaga einnig. Á málþinginu munu fræðimenn, fagfólk og reyndir 
stjórnendur fara yfir hagnýtar aðferðir og holl ráð sem stjórnendur geta 
nýtt sér við aðstæður dagsins í dag, þ.e. hvað stjórnendur geti gert til 
að stuðla að góðum starfsanda á erfiðum tímum og  hvað stofnanir geti gert 
til að skapa menningu þar sem stutt er við starfsmenn á erfiðum tímum?  

Fyrirlestrar: 
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, er dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands, 
en hún er höfundur bóka um köllun í starfi, virkjunar vonar og heppni í 
eigin lífi og um sveigjanleika fyrirtækja auk þess sem hún kennir um 
stjórnun, skipulagsheildir forystu og þekkingarstjórnun. 
Arndís Ósk Jónsdóttir, MSc. í vinnusálfræði er kennari í mannauðsstjórnun 
í MPA-námi í opinberri stjórnsýslu og forstöðumaður mannauðsráðgjafar ParX 
viðskiptaráðgjafar IBM.  
Á eftir þeirra erindum gefa holl ráð frá eigin reynslu þau Stefán 
Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sem tekist hefur á við 
umfangsmikil breytinga- og skipulagsverkefni á liðnum árum og Erna 
Einarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítala 
háskólasjúkrahúsi, en segja má að sú stofnun hafi verið í stöðugu 
umbreytinga- og sparnaðarferli frá stofnun hins sameinaða sjúkrahúss árið 
2000.  

Fundarstjóri verður Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands og 
formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20091012/3e7cb5ef/attachment.html 


More information about the Vid-stund mailing list