Af hverju brást ríkið? Hvernig endurbyggjum
við það?

Opinn hádegisfyrirlestur Páls Skúlasonar
prófessors nk. föstudag kl. 12-13.00 í Þjóðminjasafni

Nk. föstudag þann 16. október bjóða Siðfræðistofnun
og Stofnun stjórnsýslufræða til opins fyrirlestrar um eitt lykilverkefna
okkar samtíma um ríkið og endurreisn þess, en hugmyndafræðilegar deilur
í stjórnmálum Vesturlanda síðustu áratugina hafa að verulegu leyti snúist
um hlutverk ríkis og markaðar í þróun samfélaga. Hugmyndin um markaðsfrelsið
hefur verið ráðandi, en hún felur í sér að ríkið eigi að skipta sér sem
minnst af málefnum markaðarins. Einkavæðing íslenskra banka og veikt eftirlit
með þeim af hálfu ríkisins er eitt fjölmargra dæma um þetta. Eftir hrun
bankanna og hremmingar kreppunnar verður ekki hjá því komist að spyrja
á ný um hlutverk ríkisins.

Í erindinu verður fjallað um ólíkar
grundvallarhugmyndir um ríkið og færð rök fyrir þeirri tilgátu að við Íslendingar
höfum ekki lagt næga rækt við mikilvæga þætti þess. Stjórnmálaumræða hafi
ekki náð að þroskast með heilbrigðum hætti vegna þessarar vanrækslu. Við
komumst ekki lengur hjá því að vinna skipulega að því á næstu árum að endurbyggja
ríki okkar.

Fundarstjóri Gunnar Helgi Kristinsson
prófessor.