Hvernig getum við varðveitt
góðan starfsanda á tímum niðurskurðar og skerðinga á kjörum starfsmanna?

Fimmtudaginn 15. október kl.
8.30-10.00 á Grand hótel í Reykjavík.

Annað málþing haustsins í
samstarfi Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félags forstöðumanna
ríkisstofnana

Fyrirlestrar og holl ráð;
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Arndís Ósk Jónsdóttir, Stefán Eiríksson og
Erna Einarsdóttir.

Skráning: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/starfsandi

Verð; kr. 3.900.- og er morgunverður innifalinn.

Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi
þessa viðfangsefnis frammi fyrir þeim áskorunum sem stjórnendur standa
í þeim niðurskurði og skipulagsbreytingum sem framundan eru í rekstri opinberra
stofnana, bæði ríkis og raunar sveitarfélaga einnig. Á málþinginu munu
fræðimenn, fagfólk og reyndir stjórnendur fara yfir hagnýtar aðferðir og
holl ráð sem stjórnendur geta nýtt sér við aðstæður dagsins í dag, þ.e.
hvað stjórnendur geti gert til að stuðla að góðum starfsanda á erfiðum
tímum og hvað stofnanir geti gert til að skapa menningu þar sem stutt
er við starfsmenn á erfiðum tímum?

Fyrirlestrar:

Árelía Eydís Guðmundsdóttir,
er dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands, en hún er höfundur bóka um
köllun í starfi, virkjunar vonar og heppni í eigin lífi og um sveigjanleika
fyrirtækja auk þess sem hún kennir um stjórnun, skipulagsheildir forystu
og þekkingarstjórnun.

Arndís Ósk Jónsdóttir, MSc.
í vinnusálfræði er kennari í mannauðsstjórnun í MPA-námi í opinberri stjórnsýslu
og forstöðumaður mannauðsráðgjafar ParX viðskiptaráðgjafar IBM.

Á eftir þeirra erindum gefa
holl ráð frá eigin reynslu þau Stefán Eiríksson lögreglustjóri
á höfuðborgarsvæðinu, sem tekist hefur á við umfangsmikil breytinga- og
skipulagsverkefni á liðnum árum og Erna Einarsdóttir framkvæmdastjóri
mannauðsmála hjá Landspítala háskólasjúkrahúsi, en segja má að sú stofnun
hafi verið í stöðugu umbreytinga- og sparnaðarferli frá stofnun hins sameinaða
sjúkrahúss árið 2000.

Fundarstjóri verður Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands
og formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana.