[HFR-keppendur] Jack Arvid á Íslandi helgina 4. - 6. Maí 2007
Albert Jakobsson
aj at hi.is
Thu Apr 26 20:01:44 GMT 2007
Jack Arvid á Íslandi helgina 4. - 6. Maí 2007
Á vegum Hjólrreiðanefndar verður efnt til sérstakrar dagskrár um hjólreiðar
helgina 4. - 6. Maí .
Danski hjólreiðamaðurinn Jack Arvid Olsen mun heimsækja okkur og vera með
þrjú námskeið og fyrirlestur um æfingar og keppnir.
Jack mun í umfjöllun sinni leggja út frá svo kallaðri Pafei-æfingatækni sem
mjög er að ryðja sér til rúms innan hjólreiðaíþróttarinnar.
Föstudag, laugardag og sunnudag kl. 14:00 til 15:30 verða hópæfingar í
leikfimisal þar sem Jack mun leiða menn í gegnum bæði líkamlegar og
sálfræðilegar æfingar. Laugardaginn 5. maí kl. 18:00 til 20:00 heldur Jack
síðan fyrirlestur um efnið í víðara samhengi.
Pafei-tæknin gengur í stórum dráttum út á þá hugmynd að "þú (sem
hjólreiðamaður) ert ekki sterkari en veikasti hlekkurinn". "Hlekkirnir"
eru m.a. þol, tækni, hrástyrkur, sprengikraftur, "timing", "interval",
jafnvægi og "rytmi".
Fyrirlesturinn verður opinn öllum (hóflegur aðgangseyrir), en skráð verður í
æfingatímana þar sem fjöldi þáttakenda er takmarkaður. Áhugasamir geta
skráð sig hjá Pálmari á e-mail: palmar at pk.is.
Fyrirlestur og æfingar verða á dönsku .
Góðir félaga, nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri og takið frá helgina 4. -
6. maí.
Fljótlega verður auglýst nánar um endanlegar tímasetningar og staðsetningu
atburðanna.
kveðja,
Pálmar
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/hfr-keppendur/attachments/20070426/edab324c/attachment.html
More information about the Hfr-keppendur
mailing list