[HFR-keppendur] P á ska æ fingar
brynkib at simnet.is
brynkib at simnet.is
Tue Apr 3 12:38:42 GMT 2007
Sælir,
hvað segið þið um æfingar um páskana, það er hefð fyrir því að hjóla snemma á frídögum, ss eins og skírdag, td. kl. 8:30. Síðan er spurning um hina dagana yfir hátíðarnar. Viljið þið hjóla snemma á föstudaginn langa? Legg til að við hjólum einnig kl 8:30 þá.
Við Kári ætlum að hjóla upp í Hvalfjörð á laugardeginum, og ekki má gleyma Ingva! Kári verður á götuhjóli en við Ingvi á fjallahjólum. Við verðum síðan inni í Hvalstöð yfir páskana.
Þið eruð velkomnir til okkar hvenær sem er en mér datt í hug að hafa Hvalfjarðaræfingu á laugardaginn kl 11:00 sem hæfist hjá Bragganum okkar í Hvalstöðinni. Ef áhugi er fyrir því getum við boðið upp á spagettí bólónes á eftir og að sjálfsögðu er alltaf til rjúkandi kaffi!
Sunnudagsæfingin væri á sínum stað ef einhverjir mæta á páskadag, síðan er spurning um að taka æfingu á annan í páskum.
Á þetta ekki að vera megavika samkvæmt plani?
Hvað segið þið um þessa áætlun?
Brynjólfur
More information about the Hfr-keppendur
mailing list