[ÖRFÍ]Orkudrykkir og ungt fólk – ertu búin(n) að skrá þig?

Hjalti Andrason hjalti.andrason at mast.is
Fri Oct 18 13:13:07 GMT 2019


Opið verður fyrir skráningu á málþing um orkudrykki og ungt fólk til vikuloka. Aukið framboð af koffín-ríkum „orku“drykkjum hérlendis hefur ekki farið fram hjá neinum. Hvaða áhrif hefur þessi þróun á ungt fólk? Hvaða takmörk eru sett og er tilefni til breytinga?

Þetta verður til umfjöllunar á norrænu málþingi um orkudrykki og ungt fólk þriðjudaginn 22. október kl. 10:00 – 15:30 á Grand Hótel Reykjavík (Gullteig). Málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir. Hægt er að fylgjast með því í beinni á Neytendavakt Matvælastofnunar á Facebook<https://www.facebook.com/neytendavakt/>.


  *   Dagskrá málþings<http://www.mast.is/library/Upplysingar/Energy-drinks-young-people-2019-programme.pdf>
Málþingið er skipulagt af Matvælastofnun og styrkt af Norrænu ráðherranefndinni sem liður í formennsku Íslands 2019.

Með kveðju,
Hjalti Andrason

Fræðslustjóri / Head of Information and Communication
Rekstrarsvið / Office of Administration
_____________________________________________________

Matvælastofnun / Icelandic Food And Veterinary Authority
Austurvegur 64 – 800 Selfoss – Iceland
Sími/tel: (+354) 530 4800 – Fax : (+354) 530 4801 – www.mast.is
_____________________________________________________

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20191018/32a2a360/attachment.html>


More information about the Gerlanet mailing list