[ÖRFÍ]Fræðsluerindi á Keldum: Hif umritunarþáttur og Nóbelsverðlaunin í líf- og læknisfræði árið 2019
Stefán Ragnar Jónsson
stefanjo at hi.is
Mon Oct 21 13:52:28 GMT 2019
[cid:image001.png at 01D471C7.56393F90]
Þessi póstur er sendur tengiliðum við stofnanir, fyrirtæki, félög og hópa, til að kynna fræðsluerindi sem haldin eru á Tilraunastöðinni að Keldum. Vinsamlegast áframsendið með tölvupósti eftirfarandi upplýsingar til ykkar fólks.
Fræðsluerindi á fimmtudaginn, 24. október 2019 kl. 12:20, á bókasafni Tilraunastöðvarinnar.
Fyrirlesari: Sigurður Ingvarsson, prófessor og forstöðumaður á Keldum.
Heiti erindis: Hif umritunarþáttur og Nóbelsverðlaunin í líf- og læknisfræði árið 2019.
Dýr þurfa súrefni til að breyta fæðu í nýtanlega orku. Lengi hefur verið vitað um mikilvægi súrefnis fyrir lífríkið, en vitneskja um hvernig frumur líkamans nema og bregðast við breytilegu súrefnismagni er tiltölulega nýleg. Gregg L. Semenza, Sir Peter J. Ratcliffe og William G. Kaelin Jr. hljóta Nóbelsverðlaunin í líf- og læknisfræði árið 2019 fyrir uppgötvanir á lykilferlum innan fruma vegna súrefnisviðbragðs. Helsta próteinið sem tekur þátt í því ferli er lykilumritunarþátturinn Hif (Hypoxia inducible factor). Stöðug tjáning er á Hif í frumum og helsta stýring á magni Hif er með ubiquitin-proteasome niðurbrotsferli. Því ferli er stýrt með súrefnismagni. Hýdroxílhópur er hengdur á tvær prólín amínósýrur í Hif sem merkir Hif til niðurbrots eftir tengingu við Vhl próteinið. Þannig virkar hýdroxílhópurinn sem sameindarofi og fær Vhl til að tengjast Hif. Ensímið prolyl hydroxylase hvatar tengingu hydroxýlhópsins við Hif og efnahvarfið er háð súrefni. Allmörg markgen Hif eru þekkt og taka próteinafurðir þeirra þátt í ýmsum ferlum líkamans, s.s. efnaskiptum, æðamyndun og myndun rauðra blóðkorna. Í erindinu verður farið yfir helsu tímamótaskref í rannsóknum verðlaunahafanna. Einnig verður fjallað almennt um þetta innafrumuboðkerfi og mikilvægi þessarar nýju þekkingar varðandi skilning á lífeðlisfræði líkamans og sjúkdómum og meðferð við þeim. Í dag er þetta best þekkta sameindaferlið sem tekur þátt í súrefnisjafnvægi.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20191021/89fb80b5/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: image001.png
Type: image/png
Size: 64661 bytes
Desc: image001.png
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/gerlanet/attachments/20191021/89fb80b5/attachment-0001.png>
More information about the Gerlanet
mailing list